SKRÝMSLAMYND Á VEGGINN - Myndir Áslaugar Jónsdóttur
Hjá Gallerí Fold er hægt að kaupa árituð og innrömmuð gæðaprent úr hinum vinsæla skrímslabókaflokki Áslaugar Jónsdóttur. Nú hefur heimasíðu um listamenn á vegum gallerísins verið sett í loftið þar sem m.a. má skoða skrímsli Áslaugar tilbúin á vegg í barnaherberginu:Sögurnar um skrímslin eru margverðlaunaðar en níunda bókin í flokknum, Skrímsli í vanda, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka og var tilnefnd til Barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs. Bækurnar hafa hrifið bæði unga og fullorðna lesendur allt frá því að fyrsta bókin í flokknum, Nei! sagði litla skrímslið, kom út árið 2004. SKRÍMSLAVEISLA var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2025 fyrir myndlýsingu.
Áslaug hefur starfað sem myndskreytir, grafískur hönnuður, rithöfundur og myndlistamaður og sendi frá sér ljóðabókina Til minnis 2023. Hún hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Þá hefur hún haldið námskeið og fyrirlestra á ýmsum vettvangi og skrifað og myndlýst barnaefni fyrir sjónvarp.
Áslaug hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, m.a. hefur hún tvisvar fengið Dimmalimm, íslensku myndskreytiverðlaunin og hún hlaut Barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2002 ásamt Andra Snæ Magnasyni fyrir Söguna af Bláa hnettinum.



