SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir12. maí 2026

LJÓÐAÞING TIL HEIÐURS GUÐRÚNU HANNESDÓTTUR

Ljóðaþing til heiðurs Guðrúnu Hannesdóttur verður haldið laugardaginn 16. maí  í Gunnarshúsi og hefst kl 14. Þar stíga skáld og lesendur á stokk og lesa upp ljóð að eigin vali eftir skáldkonuna til kl 16.

Þau sem langar að lesa upp ljóð skáldkonunnar hafi samband við Soffíu Auði.

Kaffi verður hitað, vöfflur bakaðar og rjómi þeyttur.

Aðgangur er ókeypis og öll eru innilega velkomin.

 

 

Tengt efni