HÚSFYLLIR Á LJÓÐAÞINGI TIL HEIÐURS GUÐRÚNU HANNESDÓTTUR
Húsfyllir var í Gunnarshúsi í gær þegar Skáld.is og Óðfræðifélagið Boðn efndu til ljóðaþings til heiðurs Guðrúnu Hannesdóttur. Þingið hófst kl 14 með inngangserindi Steinunnar Ingu um skáldskap Guðrúnar en síðan tók Soffía Auður við stjórn og lásu gestir uppáhaldsljóð sín úr ljóðabókunum hennar tíu. Í hléinu var vöfflukaffi þar sem Magnea, Ragnhildur og Arnhildur stóðu vaktina en svo hélt ljóðalesturinn áfram til kl 16. Þá afhenti Anton Helgi Guðrúnu blómvönd og þakkaði henni fyrir skáldskapinn og Guðrún ávarpaði samkomuna.
Á myndinni eru f.v. Aðalsteinn Ásberg, Steinunn Inga, Magnea Þuríður, Soffía Auður, Guðrún, Jóna Guðbjörg og Anton Helgi.
Myndir og reels á facebooksíðu skáld.is.
Þetta er í annað sinn sem Skáld.is stendur fyrir viðburði af þessu tagi. Þann 18. maí á kvennaárinu 2025 var ljóðadagskrá og opinn upplestur til heiðurs Þóru Jónsdóttur.


