SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 2. september 2026

FIMMTA BARNIÐ EFTIR DORIS LESSING

Það hefur ekki farið hátt en fyrr á þessu ári kom út í íslenskri þýðingu skáldsagan Fimmta barnið eftir Nóbelsverðlaunahafann Doris Lessing. Þýðandi er Ragnheiður Jónsdóttir og útgefandi forlagið Ugla.

Fimmta barnið er mögnuð saga um hvernig líf venjulegar fjölskyldu umpólast þegar fimmta barn hjónanna kemur í heiminn.

 

 

Í kynningu útgefanda segir um söguþráð bókarinnar:

Fjögur yndisleg börn, fallegt gamalt hús, ástríkir ættingjar og vinir – líf Harriet og Davids Lovatt er hamingjusamt og gleðiríkt. En þegar fimmta barnið fæðist leggst dimmur skuggi yfir heimilislífið. Hinn ungi Ben er stór og ófrýnilegur, ofbeldisfullur og stjórnlaus.

Harriet berst við að annast nýfætt barnið en stendur frammi fyrir myrkum og undarlegum mótþróa. Óttaslegin spyr hún sjálfa sig hvað það eiginlega sé sem hún hefur fætt í þennan heim …

 

 

Átta bækur eftir Doris Lessing hafa nú verið þýddar á íslensku og því ber að fagna - sumar hafa verið gefnar út oftar en einu sinni. Tilvalið verkefni fyrir leshringi er að sökkva sér í verk þessa frábæra höfundar:

 

Minningar einnar sem eftir lifði (1985) í þýðingu Hjartar Pálssonar

Grasið syngur (1986) í þýðingu Birgis Sigurðssonar

Dagbók góðrar grannkonu (1988) í þýðingu Þuríðar Baxter

Sumarið fyrir myrkur (1989) í þýðingu Helgu Guðmundsdóttur

Marta Quest (1990) í þýðingu Birgis Sigurðarssonar

Í góðu hjónabandi (1991) í þýðingu Fríðu Á. Sigurðardóttur

Veðraþytur (1992) í þýðingu Hjartar Pálssonar

Fimmta barnið (2026) í þýðingu Ragnheiðar Jónsdóttur

 

 

 

 

Tengt efni