SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 4. september 2026

RIFSBERJADALUR ÁSDÍSAR ÓLADÓTTUR KOMIN ÚT Á ENSKU

Hin frábæra ljóðabók RIFSBERJADALURINN eftir Ásdísi Óladóttur sem kom út 2024 er nú komin út í enskri þýðingu Philips Roughton og kallast The Redcurrent Valley.

 

Rifsberjadalurinn hlaut frábæra dóma og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2025. Bókartitilinn er útskýrður þannig í ritdómi Steinunnar Ingu Óttarsdóttur hér á vefnum:

 

 

 

Rifsberjadalur hefur skemmtilega tengingu við lyfið Risperdal sem virkar á flest einkenni geðklofa og er notað við bráðum og langvinnum geðtruflunum. Dalur þessi er væntanlega sólríkur og notalegur staður þar sem hægt er að leita skjóls, svipað og að vappa inn í Víðihlíð í samnefndu ljóði Megasar. 

 

Í ársritinu SÓN 2025 birtist ítarlegur ritdómur eftir Anton Helga Jónsson um bókina og þar skrifar hann í upphafi:

 

Rifsberjadalurinn eftir Ásdísi Óladóttur er sérstök ljóðabók. Ljóðin eru afar persónuleg og segja hreinskilnislega frá reynslu og tilfinningum höfundar en það sem greinir þau frá öðrum skáldskap er úthugsað og agað myndmál sem miðlar vel undirliggjandi frásagnarþunga og virkjar um leið ímyndunarafl lesandans. Það verður sérstök og persónuleg reynsla í sjálfu sér að lesa bókina. Bókartitilinn Rifsberjadalurinn ber með sér ævintýralegan keim og sá keimur hverfur ekki þótt það upplýsist í einu ljóða bókarinnar að titillinn vísi til geðlyfs og það komi síðan í ljós við eftirgrennslan að hann sé afbökun á lyfjaheiti. Margræðni og sýn til annarra heima eru eitt einkenni á ljóðum Ásdísar sem þó eru furðu einföld að allri gerð.

 

Nýja útgáfan er tvímála og við óskum Ásdísi hjartanlega til hamingju með hana.

 

Tengt efni