FLÚÐI ELDGOSIÐ Í GRINDAVÍK - ÍSLENSKU BARNABÓKAVERÐLAUNIN
Síðasti dagurinn Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026!
Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust.
Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík, heimabæ hennar, hófust. Í bókinni segir hún sögu sína í samstarfi við verðlaunahöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur, lýsir síðasta deginum í Grindavík, tilraunum til að lifa eðlilegu lífi þrátt fyrir jörðin skylfi undir fótum hennar, fyrirvaralausum flótta fjölskyldunnar og afleiðingum þess að vera rifin upp með rótum á viðkvæmum aldri og þurfa að fóta sig í nýjum aðstæðum.
Didda Flygenring, teiknari og grafískur hönnuður, myndlýsir söguna.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:
„Textinn er knappur og blátt áfram en einlæg rödd barnsins skín í gegn og gerir lesendum kleift að setja sig í spor Grindvíkinga. Með persónulegum teiknistíl og markvissri litanotkun fangar Didda Flygenring í senn skelfinguna sem fylgdi náttúruhamförunum sem og öryggið og hlýjuna sem ástrík fjölskyldan veitir á erfiðum tímum. Síðasti dagurinn er einstakt verk um þýðingu þess að eiga heimili, tilheyra samfélagi og upplifa öryggi, bók sem vekur samkennd og eykur skilning á málefnum sem varða okkur öll.“
Að Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið, sem gefur sigurhandritið út á bók að keppni lokinni. Í dómnefnd sátu Anna Cynthia Leplar, Guðrún Lára Pétursdóttir og Sölvi Sveinsson.
Heimildir: Forlagið og sumargjof.is



