SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir∙10. október 2026

ER SAMÚÐ OG SKILNINGUR Í HEILBRIGÐISKERFINU?

Sigurrós Jóna Oddsdóttir (f. 1979) var ekki há í loftinu þegar hún áttaði sig á því hvað henni fannst gaman að semja sögur. Þær skrifaði hún á alls kyns blöð og snepla og var meira að segja svo heppin að fá til afnota gamla ritvél frá afa sínum og gat pikkað ófáar sögur á hana, segir á vefsíðu Bókabeitunnar.

Sigurrós Jóna sendi frá sér barnabókina Hringavitleysu (2021) og nú er komin ný bók frá henni, Traustabrestir. Það er sannsöguleg skáldævisaga þar sem Sigurrós Jóna byggir á lífshlaupi foreldra sinna, alvarlegum veikindum í fjölskyldunni, sorg og missi.

"Þessi bók ætti að vera skyldulesning fyrir hvern þann sem heldur að sjúklingar og aðstandendur þeirra geti reiknað með að mæta samúð og skilningi í heilbrigðiskerfinu. Það er margt fallegt í henni líka svo hún hentar líka þeim sem vita allt um það hvernig gengur að fá viðunandi þjónustu, ná tali af læknum og fá réttar upplýsingar" segir Eva Hauksdóttir um bókina á facebook-síðu sinni. 

 

Tengt efni