Steinunn Inga Óttarsdóttir∙16. október 2026
GETUM ENDALAUST BÆTT VIÐ SKÁLDATALIÐ

Sigurrós Jóna Oddsdóttir bætist í sístækkandi skáldatalið í dag. Brátt verða 600 skáldkonur hér skráðar og við getum endalaust bætt við.
Bók Sigurrósar Traustabrestir var að koma út. Þar segir frá fjölskyldu þar sem allt er í blóma þar til skyndilega hriktir í öllu. Þau stendur frammi fyrir alvarlegum veikindum heimilisföður og sagt er frá baráttu þeirra við heilbrigðiskerfið af hreinskilni og einurð, baráttu sem stundum vannst en ekki alltaf.
Áður hefur Sigurrós sent frá sér barnabókina Hringavitleysa árið 2021.
Til hamingju með nýju bókina Og velkomin á skáldabekk!

