SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

SIGURRÓS JÓNA ODDSDÓTTIR

Sigurrós Jóna er fædd árið 1979. Hún er með B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands, hefur starfað sem grunnskólakennari frá árinu 2003 og frá hausti 2022 starfar hún sem bókasafnskennari í Kópavogi.

Sigurrós uppgötvaði snemma hvað henni fannst gaman að semja sögur. Þær skrifaði hún á alls kyns blöð og snepla og var meira að segja svo heppin að fá til afnota gamla ritvél frá afa sínum og gat pikkað ófáar sögur á hana.

Fyrsta bók Sigurrósar, Hringavitleysa, kom út árið 2021. Bókin er barnabók og fjallar um tvö bekkjarsystkini í vettvangsferð á Þjóðminjasafninu sem óvart lenda inni í ævintýraheimi þar sem gömlu íslensku þjóðsögurnar eru í allsherjar flækju og krakkarnir verða að vinna saman til að leysa málin og komast aftur heim.

Traustabrestir, sannsöguleg skáldævisaga Sigurrósar kom út haustið 2026, en þar segir hún frá lífi foreldra sinna, alvarlegum veikindum í fjölskyldunni auk þess að gefa innlit í eigin minningar frá unglingsárunum og sín fyrstu kynni af sorg og missi.


Ritaskrá

2026  Traustabrestir

2021  Hringavitleysa

Tengt efni