SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir∙17. október 2026

HVERT ER LAUSNARGJALDIÐ? FJÓRÐA BÓKIN UM ODDNÝJU

Lausnargjaldið er fjórða bók Kristínar Ómarsdóttur í ritröðinni Móðurást um Oddnýju í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin. Oddný er langamma Kristínar. 

"Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt", segir í kynningartexta frá forlaginu. 

Bækurnar í ritröð Kristínar eru meitlaðar og örstuttar og magnað hversu marglaga mynd henni tekst að draga upp af íslensku bændasamfélagi nítjándu aldarinnar. Efnistökin minna á þríleik Jon Fosse,  Andvaka, Draumar Ólafs og Kvöldsyfju, meistaraverk um ævi og örlög alþýðufólks í Noregi fyrr á tímum sm færði honum bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2015. Tvisvar hefur Kristín verið tilnefnd til þeirra verðlauna (2019 og 1999) og bara tímaspursmál hvenær hún hreppir þau, sennilega 2029! Á meðan vex spennan í Biskupstungunum, mun samfélaginu, fátæktinni og feðraveldinu takast á brjóta nýjar hugmyndir á bak afturog á endanum að kúga Oddnýju og systur hennar?

"Það bendir allt til þess að bókarflokkurinn Móðurást verði í fyllingu tímans grundvallarrit íslenskra skáldbókmennta um hlutskipti kvenna, tilfinningar þeirra og hugsanir. Það er unun að lesa ljóðrænan og innblásin stíl Kristínar Ómarsdóttur, hvort sem hún er að lýsa hugsunum og samskiptum kvenna eða náttúrunni... Ég vona að höfundur standi við að koma út ekki færri en níu bindum – en um það voru, ef ég man rétt, gefin fyrirheit þegar fyrsta bókin kom út" segir Soffía Auður í ritdómi hér á vefnum um þriðju bókina, Sólmánuð. Lesendur eiga sannarlega gott í vændum.

Hér segir Kristín frá þriðju bókinni, Sólmánuði:

Tengt efni