SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 8. maí 2025

FRIÐARDEGINUM FAGNAÐ

 

Í dag fagna Evrópubúar endalokum síðari heimstyrjaldarinnar sem hafði mikil áhrif á íslenskt samfélag þótt ólíku sé til að jafna þegar litið er til þeirra þjóða sem tóku beinan þátt með stríðstólum og mannfórnum. Á Íslandi varð efnahagslegur uppgangur með tilkomu hersetuliða og þá skapaðist það sem kallað var "Ástandið" og var mörgum þyrnir í augum - sér í lagi karlmönnum - því allt í einu höfðu íslenskar konur úr miklu mannvali að velja. Um þetta orti skáldkonan Lilja Björnsdóttir:

 

 

"ÁSTANDIÐ"

Þegar karlmennirnir voru hinir „hreinu“ dómarar

Í hrifningu skoðum við herrana þá,
sem hreinlífið stunda nú e i n i r.
Dyggðanna hátindi dansa þeir á
svo djarfir og hvítir og hreinir.
 

 

Ásta Sigurðardóttir gerir "Ástandinu" stórkostleg skil í smásögunni "Súpermann" og hér fyrir neðan er tengill í grein um söguna og fleira á vefnum okkar sem tengjast þessu efni.

 

Tengt efni