Magnea Þuríður Ingvarsdóttir∙25. febrúar 2026
MEÐ BREST Í BOGA
María Skagan er ljóðskáld dagsins. Hún var fædd 27. janúar árið 1926 og hefði því orðið 100 ára. Við minnumst hennar og ljóða hér í dag. Ljóðin í ljóðabókinni hennar ,,Með brest í boga" sem út kom árið 2000 eru knöpp og full af visku.

Lesa má um Maríu hér inni á skáld.is
Þú sem ert fyrir innan
Vetrarhrímtrjám
vaxinn gluggi
veiðir kvöldsólarskin
í loðna möskva.
Þú sem ert
fyrir innan
og styðst við staf
þinn og hækju.
Nær safnar þú
minningum þínum
að sá þeim í vorið
í garðinn fyrir utan.

