SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir31. mars 2026

TVÖ VERÐLAUNALJÓÐ EFTIR JÓNÍNU ÓSKARSDÓTTUR

 

 

Jónína Óskarsdóttir hefur tvisvar hlotið verðlaunasæti í ljóðasamkeppni JÚLÍÖNU - HÁTÍÐ SÖGU OG BÓKA, sem haldin er í Stykkishólmi á hverju vori. Fínar konur 1896-2006 hlaut 2. verðlaun á hátíðinni 2018 og Kátt í koti og höll hlaut 3. verðlaun í ár, 2026. Við fengum leyfi hjá Jónínu til að birta bæði ljóðin hér á vefnum, enda einkar skemmtileg ljóð - beint úr kvenlegri reynslu.

 

 

 

FÍNAR KONUR 1896-2006

Mér finnst ég alltaf fín
þegar ég er búin að klæða mig í peysufötin
sagði hún amma, sléttaði úr skottinu
og lét ekki sjá sig öðruvísi
við betri tækifæri
 
Mér finnst ég alltaf elegant
þegar ég kem úr lagningu
sagði mamma í fína sumarkjólnum
angandi af hárlakki
yfir túberinguna
 
Mér finnst ég alltaf töff
ef ég á góðar gallabuxur
segi ég enn miðaldra konan
og gallabuxur eru mín peysuföt, lagning
og – nefndu það bara
 

 

KÁTT Í KOTI OG HÖLL

Alltaf er mér hlýtt til þeirra systra Margrétar, Benediktu og Önnu Maríu. Hún er yngst systranna en giftist barnung útlendingi og fór að heiman. Næst gekk Margrét sú elsta í það heilaga og þá varpaði maður öndinni léttar því það hefði verið leiðinlegt fyrir hana ef Benedikta hefði verið á undan því Margrét er elst. Að lokum gekk Benedikta út og þá voru þær systurnar allar komnar í örugga höfn eða það hefði maður ætlað en ekki fer allt sem skyldi. Þeim Önnu Maríu og Konstantín manni hennar var steypt af stóli þegar herforingjastjórnin í Grikklandi rændi völdum og þessi ungu fallegu konungshjón með litlu dóttur sína, hana Alexíu, send í útlegð og voru ekki einu sinni velkomin heim til Danmerkur þegar sjálf krónprinsessan systir hennar giftist honum Henrik prins sem var alveg afburða glæsilegur í sínu ungdæmi. Þýski prinsinn hennar Benediktu, Richard sem var með ættarnöfnin Wittgenstein-Berleburg á hreinu, var aftur á móti ekkert fyrir augað en ábyggilega ágætis maður, allavega mikill og góður hestamaður. Nú eru þær Margrét og Benedikta glaðlegar ekkjur en Anna María og Konstantín geta loks um frjálst höfuð strokið á grískum eyjum sólbrún í ellinni barnung og sísæl í minningunni frá myndunum í Familie Journal.

Tengt efni