BERGÞÓRA Á BERGÞÓRSHVOLI
Það er eitt sameiginlegt sem eldri ljóðakonur (fæddar á bilinu 1800-1900) eiga sameiginlegt fyrir utan það að vera ljóðskáld en það var að yrkja um landnámskonur og konur í Íslendingasögunum. Er það vel gert. Þessar fornkonur Íslands voru ekki plássfrekar í fornbókmenntum almennt,. Líklega voru þær þó raunverulegar og áttu við margvísleg málefni og vandamál við að stríða eins og títt er nú sem alltaf. Við þekkjum sögurnar af Guðrúnu Ósvífurdóttur, Hallgerði og Melkorku og við þekkjum söguna um Bergþóru á Bergþórshvoli og margar fleiri þar sem fjallað er um þær í tengslum við málefni sagnanna eða annarra kosta sem þær báru. Eigi að síður alltaf góðar fyrirmyndir okkar hinna.
Í ljóðabók sinni ,,Við fjöllin blá" 1982 yrkir afmælisbarn dagsins í gær hún Guðrún Auðunsdóttir 1903-1994 fallegan ljóðabálk um Bergþóru. Það stendur henni líklega nærri að fjalla um hana því hún bjó ekki alllangt frá Bergþórshvoli eða við rætur Eyjafjalla. Fædd á Dalseli en bjó lengst af í Stóru Mörk. Ég man er ég las um Bergþóru í gamla daga þá þótti mér hún vera stoð og stytta Njáls, myndarleg en þó hafði hún nokkurt skap. Ekki man ég mikið um hana meira og ekki var hægt að lesa sér til um tilfinningar hennar líðan eða önnur verk annað en það sem mátti lesa í Njálssögu en svona yrkir Guðrún um Bergþóru:
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Húsfrú Bergþóra á Bergþórshvolivar barn sinnar tíðar, hörð í lund,gast hvorki að víli né voli,vopnin lét hvetja á gremjustund.Fyrir Hallgerði á Hlíðarendahlut sinn aldrei lét.Vinur vina sinnavar og hét.Dætrum sínum og sonum hún unnisæmdir og virðing lét í témeð Njáli sem lýðveldislögin kunniog lagði til ráð og fé.Mannval var margt á bænum,mikið um aflaföng.Húsfreyjan ríkti og réðiráðsnör, ströng.Hún vissi að hennar veraldarfengurgat verið á förum, allt til þess dró,fyrst Njáll gat ei sættir samið lengur,í sama knérunn Skarphéðinn vó.Hvort hafði Skarphéðinn, skap hennar erft?Skar hún ei stakk á sín börn?Í illri örlagaflækjufannst engin vörn.Hún vissi að seint mundi í för þeirra fennasem fengu með vopnum Höskuld sóttskildi að enginn má sköðum renna,skæð mundi hefnd hjá Flosa drótt.En reisn skyldi halda til hinstu stundar,hjúum hún býður veisluföng.Þó svipir og sýnir flöktium sal og göng.Svo kaus hún dauðann, kastaði prjálier kynt voru bálin við Hvolsins þökog gekk í síðustu sæng með Njáli,saman þau gistu dauðans vök.Guðurnir höfð ei hverflynt hjartahenni skapað sé brygð í lund.Njáli einum hún unnium ævistund.Ennþá rís Hvollinn suður við sæinnmeð söguljómann frá horfinni öldog minnir á þá sem byggðu bæinnog báru þar lífsins sektargjöld.Hátt ber á húsfreyjunni,hún fær lofið best.Heiðruð af héraðsbúumí hinstu göngunni mest.

