Iðunn Steinsdóttir
Iðunn Steinsdóttir fæddist þann 5. janúar 1940 á Seyðisfirði.
Iðunn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1960 og kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1981.
Iðunn vann hjá Skipaútgerð ríkisins frá 1960 til 1962 og starfaði síðan við grunnskólakennslu um nokkurra ára skeið og kenndi m.a. á Húsavík og við Laugarnesskóla. Frá 1987 hefur hún að mestu fengist við ritstörf.
Iðunn sat í stjórn Leikfélags Húsavíkur 1968-1972 og í stjórn Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur 1989-1991. Hún var í ritstjórn blaðsins Börn og bækur 1985-1989 og í átti þátt í að ritstýra bókinni Dagamunur sem gefin var út í tilefni 70 ára afmælis Kvenfélagssambands Suður-Þingeyinga 1975.
Iðunn er formaður Barna og bóka, Íslandsdeildar IBBY samtakanna.
Fyrsta verk Iðunnar er barnabókin Knáir krakkar sem kom út árið 1982 og síðan hefur hún sent frá sér fjölda barnabóka, meðal annars bækurnar um prakkarana Snuðru og Tuðru sem notið hafa mikilla vinsælda. Margar smásögur Iðunnar hafa birst í barnablaðinu Æskunni og hefur hún einnig samið sögur fyrir barnatíma útvarps og sjónvarps.
Iðunn hefur samið handrit að sjónvarpsmyndum og þáttaröðum fyrir börn auk handrits að fræðslumyndinni Ég veðja á Ísland sem hún samdi fyrir Námsgagnastofnun. Hún hefur skrifað fjölda námsbóka fyrir grunnskóla og einnig samdi hún barnaefni fyrir Umferðaráð. Þá á hún fjölda söngtexta á hljómplötum. Hún hefur skrifað leikrit í samvinnu við systur sína, Kristínu Steinsdóttur rithöfund.
Iðunn hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín.
Iðunn er gift og á þrjú uppkomin börn og býr í Reykjavík.
Ritaskrá
- 2023 Handan blárra fjalla (Ljóðasafn)
- 2021 Snuðra og Tuðra fara í útilegu
- 2020 Snuðra og Tuðra fara í sund
- 2019 Snuðra og Tuðra í sólarlöndum
- 2019 Snuðra og Tuðra taka til
- 2018 Snuðra og Tuðra eiga afmæli
- 2018 Snuðra og Tuðra í sveitaferð
- 2015 Hrólfs saga. Fönnin hylur sporin
- 2014 Leitin að geislasteininum
- 2008 Allra sálna messa
- 2008 Snuðra og Tuðra í jólaskapi
- 2007 Mörkin horfin (með Kristínu Steinsdóttur)
- 2007 Mánudagur - bara einu sinni í viku
- 2007 Snuðra og Tuðra og eyðslupúkinn
- 2005 Fyrsta bókin um Sævar
- 2004 Galdur Vísdómsbókarinnar
- 2004 Snuðra og Tuðra laga til í herberginu sínu
- 2003 Kynjaverur í Kverkfjöllum
- 2002 Snuðra og Tuðra í jólabakstri
- 2001 Litlu landnemarnir
- 2000 Haustgríma
- 1997 Út í víða veröld
- 1996 Þokugaldur
- 1994 Með bómull í skónum
- 1993 Er allt að verða vitlaust?
- 1992 Fjársjóðurinn í Útsölum
- 1992 Snuðra og Tuðra eiga afmæli
- 1992 Snuðra og Tuðra halda jól
- 1992 Snuðra og Tuðra laga til í skápum
- 1992 Snuðra og Tuðra láta gabba sig
- 1992 Snuðra og Tuðra og fjóshaugurinn
- 1991 Gegnum þyrnigerðið
- 1991 Ormurinn í Lagarfljóti
- 1991 Snuðra og Tuðra fara í strætó
- 1991 Snuðra og Tuðra í búðarferð
- 1991 Snuðra og Tuðra í miðbænum
- 1991 Snuðra og Tuðra missa af matnum
- 1991 Snuðra og Tuðra verða vinir
- 1991 Ævar á grænni grein
- 1990 En það borgaði sig
- 1990 Skuggarnir í fjallinu
- 1989 Drekasaga
- 1988 Víst er ég fullorðin
- 1987 Iðunn og eplin
- 1987 Olla og Pési
- 1986 Jólasveinarnir
- 1984 Fjallakrílin, óvænt heimsókn
- 1983 Fúfú og fjallakrílin
- 1982 Íkorninn í skóginum
- 1982 Knáir krakkar: íslensk barnasaga
- 1982 Það er mús í húsinu
Iðunn hefur einnig skrifað fræðigreinar og námsefni og eftir hana liggja leikritagerðir í handritum.
Verðlaun og viðurkenningar
- 2008 Þriðju verðlaun í draugasögusamkeppni hátíðarinnar Draugar úti í mýri fyrir Allra sálna messa
- 2007 Heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands
- 2000 Heiðurslaun Bókasafnssjóðs höfunda
- 1997 Viðurkenning Hagþenkis fyrir Námsefni í kristnum fræðum (ásamt Sigurði Pálssyni)
- 1994 Viðurkenning Íslandsdeildar IBBY samtakanna fyrir Er allt að verða vitlaust?
- 1991 Heiðurslisti IBBY samtakanna fyrir Gegnum þyrnigerðið
- 1991 Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Gegnum þyrnigerðið
- 1989 Þriðju verðlaun Leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur fyrir Randaflugur (ásamt Kristínu Steinsdóttur)
- 1989 Önnur verðlaun Leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur, fyrir Mánablóm (ásamt Kristínu Steinsdóttur)
- 1988 Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir Olli og Pési
- 1986 Smásagan Aspadista og erfðagóss var valin til birtingar í bókinni Smásögur Listahátíðar
- 1986 Fyrstu verðlaun í Leikritasamkeppni Ríkisútvarpsins fyrir 19. júní (ásamt Kristínu Steinsdóttur)
- 1984 Verðlaun í samkeppni Námsgagnastofnunar um léttlestrarefni fyrir Bras og þras á Bunulæk
Þýðingar
- 2020 Lína eftir Lydiu Didriksen
- 2005 Fyrsta bókin um Sævar eftir Listbeth Iglum Rønhovde, Marianne Mysen
- 1982 Það er mús í húsinu eftir Richard Fowler
- 1982 Íkorninn í skóginum eftir Richard Fowler