SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jónína Leósdóttir

Jónína er fædd í Reykjavík 16. maí 1954. Hún lauk stúdentsprófi úr fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík og BA-prófi í ensku og bókmenntafræðum frá Háskóla Íslands. Einnig stundaði hún nám við Essex-háskóla í Bretlandi.

Jónína hefur skrifað æviminningabækur,  skáldsögur, barna- og unglingabækur og fjölda smásagna. Leikrit eftir Jónínu hafa verið sýnd í Sjónvarpinu og verk eftir hana verið flutt í Útvarpsleikhúsinu. Auk þess var leikrit hennar, Leyndarmál, flutt í þremur framhaldsskólum og stuttir leikþættir eftir Jónínu hafa verið sýndir vítt og breitt um landið.

Fyrsta frumsamda bók Jónínu var Guð almáttugur hjálpi þér, ævisaga séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar, sem út kom 1988. Árið 1993 kom unglingabókin Sundur og saman en fyrsta skáldsaga Jónínu fyrir fullorðna, Þríleikur, kom út 1994. Árið 2013 sendi Jónína frá sér bókina Við Jóhanna, sem er ástarsaga hennar og Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, og hlaut hún mjög góðar viðtökur.

Í janúar 2008 hlaut Jónína Ljóðstaf Jóns úr Vör, verðlaun í ljóðasamkeppni á vegum Kópavogsbæjar. Einnig hefur hún hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir smásögur og leikverk og árið 2009 hlaut hún viðurkenningu IBBY á Íslandi fyrir skrif sín fyrir unglinga.

Jónína starfaði sem blaðamaður og ritstjóri um tveggja áratuga skeið og þýddi skáldsögur og bækur af öðrum toga. Frá árinu 2006 hefur hún unnið alfarið við bókaskrif. Árið 2016 kom fyrsta glæpasaga Jónínu út, Konan í blokkinni, og er hún tilnefnd til íslensku glæpasagnaverðlaunanna, Blóðdropans. Önnur bókin í þessum nýja bókaflokki, Stúlkan sem enginn saknaði, kom út í ársbyrjun 2017.


Ritaskrá

  • 2022   Varnarlaus
  • 2021   Launsátur
  • 2020   Andlitslausa konan
  • 2019    Barnið sem hrópaði í hljóði
  • 2018    Óvelkomni maðurinn
  • 2017    Stúlkan sem enginn saknaði    
  • 2016    Konan í blokkinni    
  • 2014    Bara ef …     
  • 2013    Við Jóhanna     
  • 2012    Léttir    
  • 2011    Upp á líf og dauða    
  • 2010    Allt fínt … en þú?     
  • 2010    Elskar mig, elskar mig ekki     
  • 2009    Ég & þú    
  • 2008    Svart & hvítt    
  • 2008    Miðbæjarmynd  
  • 2007   Talað út um lífið og tilveruna (úrval pistla úr Nýju lífi)
  • 2007    Kossar & ólífur    
  • 1994    Þríleikur    
  • 1993    Sundur og saman    
  • 1992    Rósumál: líf og störf Rósu Ingólfsdóttur
  • 1988     Guð almáttugur hjálpi þér - æviminningar séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2009 – Vorvindar – viðurkenning IBBY á Íslandi: Fyrir skrif fyrir unglinga
  • 2008 – Ljóðstafur Jóns úr Vör: „Miðbæjarmynd“
  • 2007 – Smásagnasamkeppni Nýs lífs, 1. verðlaun: „Leiðarlok“
  • 2006 – Sakamál á svið, leikritasamkeppni Borgarleikhússins, valið í sex verka úrslitakeppni: Engu að tapa
  • 1997 – Leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur, 3. verðlaun: Sælustundir
  • 1995 – Leikritasamkeppni Sjálfsbjargar og Sambands íslenskra sveitarfélaga, 2. verðlaun: Að vera eða vera ekki