ÞRJÓSKAN OG HUGVITIÐ - Algör perla eftir Jónínu Leósdóttur
Þegar Perla rankar við sér á Landspítalanum eftir heilablóðfall snýst hennar fyrsta hugsun aðeins um eitt: Bévað líkið, sem getur alveg ómögulega verið áfram þar sem það er. En hvað getur hálflömuð manneskja á áttræðisaldri tekið til bragðs í slíkri stöðu? Vitanlega getur hún ekki blandað nokkrum í svo viðkvæmt mál. En það má komast ansi langt á þrjóskunni og hugvitinu einu saman … og stundum fær kona í neyð liðsauka úr óvæntustu átt.
Algjör Perla er glæný bók úr smiðju Jónínu Leósdóttur, sem hefur skrifað á þriðja tug bóka – þar á meðal tvær geysivinsælar glæpasagnaseríur kenndar við Eddu og Sáló ehf. Alþekkt kímnigáfa Jónínu nýtur sín sérstaklega vel í þessari margslungnu og hlýlegu sögu sem kemur sífellt á óvart. Kápan lofar góðu!
Árið 2009 var tekið viðtal á rúv við Jónínu og þar var hún m.a. spurð hvernig það var að verða forsætisráðherrafrú 1. febrúar 2009, þegar Jóhanna Sigurðardóttir, eiginkona Jónínu, varð forsætisráðherra landsins. „Helstu óþægindin voru þau að einkalífið hvarf. Það var bara ekkert til sem hét heimilislíf,“ segir Jónína um árin 2009-2013. Íslendingar kipptu sér ekki sérlega upp við það að forsætisráðherrahjónin væru tvær konur en það vakti mikla athygli víða um lönd. En eins og Jónína bendir á þá hafa miklar breytingar orðið í afstöðu til samkynhneigðar síðan þá.
Aðallega voru rithöfundarstörfin þó til umræðu á Morgunvaktinni. Jónína skrifar sem fyrr um fólk og samskipti og tvinnar inn ýmis álitamál samtímans, spyr spurninga um hvað sé normal og hvað ekki, hvar mörk réttlætisins liggja. „Algjörlega í sambandi við nútímann,“ segir hún um stöðu sína. Lítur hún á sig sem pólitískan höfund? „Já, að sumu leyti. Þetta er eins og lýsispillan sem maður fékk í skólanum í gamla daga. Það er sykurhúð - svo að það sé ekki mjög erfitt að kyngja.“
Jónína er stofnandi Fjöru-verðlaunanna ásamt Ingibjörgu Hjartardóttur.
Í Kiljunni 15. apríl sl var skemmtilegt spjall við Jónínu um verk hennar, smelltu á myndina:



