![](https://skald.is/rails/active_storage/representations/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaHBBczRJIiwiZXhwIjpudWxsLCJwdXIiOiJibG9iX2lkIn19--4dbd5bacb1f9a21ddb69758e40d3d2009c080d31/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaDdDem9VYzJGdGNHeHBibWRmWm1GamRHOXlTU0lLTkRveU9qQUdPZ1pGVkRvTWNYVmhiR2wwZVdsYU9ncHpkSEpwY0ZRNkRtbHVkR1Z5YkdGalpVa2lDVXBRUlVjR093WlVPZzlqYjJ4dmNuTndZV05sU1NJSmMxSkhRZ1k3QmxRNkRHTnZiblpsY25RdyIsImV4cCI6bnVsbCwicHVyIjoidmFyaWF0aW9uIn19--025048454440a4ffbe1bfbd2ffec4bffda87ad8b/4fc0b3_9bc0d876b2e044978337d23a970abab4~mv2_d_1574_1791_s_2.jpg)
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir er fædd i Reykjavík 11. febrúar 1974.
Sigríður tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam síðan sagnfræði og spænskar bókmenntir við Háskóla Íslands og háskólann í Salamanca og blaðamennsku við Columbia-háskóla í New York.
Sigríður hefur starfað með hléum sem fréttamaður við Ríkisútvarpið frá árinu 1999, þar af um árabil sem fréttaritari RÚV í Kaupmannahöfn. Hún hefur einnig verið umsjónarmaður umræðuþáttarins Silfur Egils í ríkissjónvarpinu.
Fyrsta skáldsaga Sigríðar, Eyland, kom út árið 2016, vakti mikla athygli og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Menningar-verðlauna DV og síðan hefur hún sent frá sér fleiri skáldsögur.
Útgáfuréttur bóka Sigríðar hefur verið seldur til margra landa og hefur fyrsta bók hennar til að mynda verið þýdd á frönsku, þýsku, pólsku, tékknesku og ungversku.
Sigríður er gift Jóni Kalman Stefánssyni rithöfundi og búa þau í Reykjavík.
Ritaskrá
- 2023 Deus
- 2022 Hamingja þessa heims. Riddarasaga
- 2020 Eldarnir. Ástin og aðrar hamfarir.
- 2018 Hið heilaga orð
- 2016 Eyland
Verðlaun og viðurkenningar
- 2023 Önnur verðlaun bóksala fyrir Deus
Tilnefningar
- 2022 Til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Hamingja þessa heims, riddarasaga
- 2017 Til Fjöruverðlaunanna fyrir Eyland
- 2016 Til Menningarverðlauna DV fyrir Eyland
Þýðingar
- 2024 Éruptions, amour et autres cataclysmes (Eric Boury þýddi á frönsku)
- 2023 Tützek (Bence Patat þýddi á ungversku)
- 2023 The Fires: Love & other disasters (Larizza Kyser þýddi á ensku)
- 2021 Vúlkany, ljubovj i protjé bedstvija (Olga Alexandersdóttir Markelova þýddi á rússnesku)
- 2021 Ostrov (Tatiana Sheniavskaia þýddi á rússnesku)
- 2021 Ognie (Jacek Godek þýddi á pólsku)
- 2020 Święte słowo (Jacek Godek þýddi á pólsku)
- 2020 La Lectrice disparue (Eric Boury þýddi á frönsku)
- 2019 Ostrov ( Lucie Korecká þýddi á tékknesku)
- 2019 Den avstengte øya (Tone Myklebost þýddi á norsku)
- 2019 A sziget (Bence Patat þýddi á ungversku)
- 2018 L'ile (Eric Boury þýddi á frönsku)
- 2018 Blackout Island (Tine Flecken þýddi á þýsku)
- 2018 Wyspa (Jacek Godek þýddi á pólsku)