SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Elísa Björg Þorsteinsdóttir

Elísa Björg kom í heiminn á Húsavík 29. maí 1952 og átti þar heima fram undir tvítugt. Hún lauk stúdentsprófi frá MA og stundaði síðan nám í lisatsögu og sögu með áherslu á Austur-Evrópu í Freiburg í Þýskalandi. Þar lagði hún jafnframt stund á rússnesku í nokkur ár og fékk styrk til ársdvalar í Moskvu. 

Að loknu meistaranámi í Freiburg flutti Elísa til Reykjavíkur og vann ýmis störf, m.a. í Bóksölu stúdenta, á Listasafni Íslands, Kjarvalsstöðum, Gerðarsafni og við fararstjórn erlendis. Lengst af vann hún við kennslu í sögu og listasögu við Menntaskólann í Kópavogi, en einnig við MHÍ, LHÍ og HÍ.

Undanfarin ár hefur Elísa starfað sem þýðandi. Hún hefur m.a. þýtt nóbelshöfunda eins og Ishiguro og Hermann Hesse.


Ritaskrá

2025 Vaxtarræktarkonan einmana – YUKIKO MOTOYA (Angústúra)

2025 Heima / Daheim – JUDITH HERMANN (Benedikt)

2024 Leiðin í hundana  / Der Gang vor dir Hunde – ERICH KÄSTNER (Ugla útgáfa)

2024 Saga af svartri geit – PERUMAL MURUGAN (Angústúra) Íslensku þýðingaverðlaunin 2024.

2023 (2 smásögur í) Kvæði og sögur - EDGAR ALLAN POE (Dimma)

2022 Kjörbúðarkonan – SAYAKA MURATA (Angústúra)

2022 Farþeginn / Der Reisende – ULRICH ALEXANDER BOSCHWITZ (Dimma)

2021 Engir hnífar í eldhúsum þessarar borgar /:La Sakakin fi Matabikh hadhihi al madina – KHALED KHALIFA (Angústúra)

2021 Uppruni / Herkunft – SAŠA STANISIČ (Bjartur)

2021 Um endalok einsemdarinnar / Vom Ende der Einsamkeit – BENEDICT WELLS (Benedikt bókaútgáfa)

2020 Uppljómun í eðalplómutrénu / (e.: The Enlightenment of the Greengage Tree) SHOKOOFEH AZAR (Angústúra)

2020 Sendiboðinn / (Kentoshi) – YOKO TAWADA (Angústúra)

2019 Dauðinn er barningur / Der Tod ist ein mühseliges Geschäft – KHALED KHALIFA  (Angústúra)

2019 Kona í hvarfpunkti / Eine Frau am Punkt Null – NAWAL EL-SAADAWI (Angústúra) Tiln. þýð.verðl.

2019 Olga – BERNHARD SCHLINK (Forlagið)

2018 Etýður í snjó / Etüden im Schnee –YOKO TAWADA (Angústúra) Tiln. þýð.verðlaun

2018 Allt sundrast / Things Fall Apart – CHINUA ACHBE (Angústúra)

2017 Mannsævi / Ein ganzes Leben – ROBERT SEETHALER (Bjartur)

2017 Ég lærði ekki heima af því að – DAVIDE CALI/BENJAMIN CHAUD (Angústúra)

2016 Ekkjan / The Widow – FIONA BARTON (Bjartur)

2013 Ráðskonan og prófessorinn / The Housekeeper and the Professor - YOKO OGAWA (Bjartur)

2013 Rosie-verkefnið / The Rosie Project - GRAEME SIMSION (Bjartur)

2012: Prýðisland / The Land of Decoration  GRACE McCLEEN (Bjartur)

2010 Adam og Evelyn / Adam und Evelyn – INGO SCHULZE (Forlagið)

2009 Málavextir / Case Histories - KATE ATKINSON (Bjartur) Tiln. þýð.verðlaun

2007 Saffraneldhúsið / The Saffron Kitchen - YASMIN CROWTHER (Bjartur)

2007 Mæling heimsins / Die Vermessung der Welt – DANIEL KEHLMANN (Bjartur)

2005 Slepptu mér aldrei / Never Let Me Go - KAZUO ISHIGURO (Bjartur)

2003 Fimm mílur frá Ytri-Von / Five Miles From Outer Hope - NICOLA BARKER (Bjartur)

2002 Veröld okkar vandalausra / When We Were Orphans - KAZUO ISHIGURO (Bjartur)

2001 Sumarhús, seinna / Sommerhaus, später – JUDITH HERMANN (Bjartur)

2000 Bara sögur / Simple Storys – INGO SCHULZE (Mál og menning)

1998 Sléttuúlfurinn / Der Steppenwolf – HERMANN HESSE (Ormstunga)

1996 Óhuggandi / The Unconsoled - KAZUO ISHIGURO (Bjartur)

1994 N.P. - BANANA YOSHIMOTO (Bjartur)

1993 Eldhús / Kitchen - BANANA YOSHIMOTO (Bjartur)

1991 Í heimi hvikuls ljóss / An Artist of the Floating World - KAZUO ISHIGURO (Bjartur)

1990 Hafið, hafið / The Sea, The Sea - IRIS MURDOCH (Iðunn)

1987 Örlagasaga / Bis zur bitteren Neige - JOHANNES MARIO SIMMEL

1986 Ást innan myrkra múra / The Gabriel Hounds - MARY STEWART (Iðunn)

1985 Ævi og ástir kvendjöfuls / The Life and Loves of a She-Devil - FAY WELDON (Forlagið)

1985 Fórnareldur / Wildfire at Midnight - MARY STEWART (Iðunn)

1984 Leyndarmálið / Touch Not the Cat - MARY STEWART (Iðunn)

 

Enn fremur smásögur í safnritum, tímaritum, útvarpi, m.a. eftir Heinrich Böll, Gert Heidenreich, Stephan Krawczyk, Haruki Murakami, Bernward Spinnen

Ýmsar greinar, m.a. í sýningarskrám o.þ.h.

2000 Arkitektúr á Íslandi – leiðarvísir – BIRGIT ABRECHT (Mál og menning)

Verðlaun og viðurkenningar

Þýðingaverðlaunin 2025 fyrir Saga af svartri geit eftir Perumal Murugan

Bóksalaverðlaunin

2019   

2. verðlaun fyrir Kona í hvarfpunkti eftir Nawal El Saadawi

2018   

1. verðlaun: Allt sundrast eftir Chinua Achebe

3. verðlaun: Etýður í snjó eftir Yoko Tawada / ásamt Heiðrúnu Ólafsdóttur fyrir Hómó Sapína

 

Tilnefningar

Tilnefningar til Þýðingaverðlaunanna:

2019  Kona í hvarfpunkti eftir Nawal El Saadawi

2018  Etýður í snjó eftir Yoko Tawada

2009  Málavextir eftir Kate Atkinson

Þýðingar

Sjá ritaskrá

Tengt efni