SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir24. mars 2023

VERÐLAUNALJÓÐ á Júlíönuhátíð eftir Draumeyju

 

Draumey Aradóttir skáldkona bar sigur úr býtum í ljóðasamkeppni á vegum Júlíönu - hátíðar sögu og bóka en 101 ljóð barst í keppnina. Í dómnefnd sátu Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir ritstjóri, sem var formaður dómnefndar, Anton Helgi Jónsson skáld og Sólveig Ásta Sigurðardóttir doktor í bókmenntafræði.

Ljóðið ber titilinn ,,Þannig hverfist ég, mamma mín, þannig hverfist ég" og óskar Skáld.is Draumeyju innilega til hamingju með verðlaunin og hér fyrir neðan má lesa verðlaunaljóðið (birt með leyfi höfundar):

 

 

ÞANNIG HVERFIST ÉG 
 
Það er kjarni og það er yfirborð
það er rót og það er birtingarmynd
 
Ég heyri þegar þú segir vinkonum þínum sögurnar af því
þegar ég kom heim úr skólanum á öðru stígvélinu í kafaldsbyl
án þess að taka eftir því sjálfur og hvernig ég gat leikið mér 
fram að háttatíma með húfu á höfði án þess að finna fyrir henni, 
hvernig ég dunda mér alla daga og byggi þúsund kubba Legóveröld
og teikna fjórtán síðna myndaseríu með tæknilegum smáatriðum
einn og sjálfur og bý til brúðuleikhús og leik Unga litla og Krúsa bangsa
og Rauðnef rebbastrák og Tígra og allar kisurnar og er alsæll
einn inni í herbergi, dag eftir dag, ár eftir ár, sjálfum mér svo nógur
sem alls ekki er öllum gefið og er svo góður eiginleiki að búa að
fyrir fullorðinsárin. Ég heyri það allt. 
Og það, mamma mín, er yfirborðið, mynd þín af mér.
 
En kjarninn er sá að einmitt þannig hverfist ég og mun alla tíð gera,
til einveru en ekki samskipta,
til karakteranna í leikhúsinu mínu en ekki áhorfendanna,
til teiknimyndanna minna en ekki hugsanlegra lesenda,
því í minni veröld eru þeir ekki til, eða í besta falli óþarfir. 
Og þess vegna á ég bara bros handa þér þegar þú kemur,
bros þegar þú hringir og spyrð hvort ég fari ekki að koma,
bros því ég á engin orð til að segja þér það sem ég finn inni í mér
en get hvorki né vil breyta,að ég þarfnast þín ekki þótt þú þarfnist mín. 
Bara einlægt bros, mamma mín, því ég kann ekkert annað
einlægt, því þannig hverfist ég. 

 

Tengt efni