SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir10. september 2023

NÝ BÓK VÆNTANLEG FRÁ VILBORGU

Nú eru farnar að berast fréttar af væntanlegu bókaflóði haustsins og lesendur geta farið að hlakka til. 
 
Í október er væntanleg ný skáldsaga eftir Vilborgu Davíðsdóttur sem ber titilinn Land næturinnar. Í nýju bókinni heldur Vilborg áfram að rekja sögu Þorgerðar Þorsteinsdóttur, sonardóttur Auðar djúpúðgu sem Vilborg skrifaði rómaðan skáldsagnaþríkleik um: Auður (2009), Vígroði (2012) og Blóðug jörð (2017). Fyrri bókin um Þorgerði bar titilinn Undir Yggdrasil og kom út haustið 2020 og var þar um virkilega spennandi og áhugaverða skáldsögu að ræða. Það er því tilhlökkunarefni að lesa nýju bók Vilborgar. 
 
Bókarkápu Lands næturinnar gerði Emilía Erla Ragnarsdóttir, grafískur hönnuður hjá Forlaginu og á baksíðu segir:
 
 
 
 
Þorgerður Þorsteinsdóttir hefur lifað mikinn harm heima á Íslandi og heldur til Noregs þar sem örlögin leiða hana í faðm skinnakaupmannsins Herjólfs Eyvindarsonar. Saman halda þau til Garðaríkis, á fund væringja sem sigla suður Dnépurfljót og yfir Svartahaf með ambáttir og loðfeldi á markað í Miklagarði. Í landi næturinnar bíða þeirra launráð og lífsháski. Á augabragði er Þorgerður orðin ein meðal óvina og kemst að því að stundum kostar það meira hugrekki að lifa en deyja.
 
LAND NÆTURINNAR er áhrifamikil og spennandi skáldsaga sem hefst þar sem þræðinum sleppti í fyrri bókinni um Þorgerði, UNDIR YGGDRASIL, en fyrir hana var Vilborg Davíðsdóttir tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2021. Hér leiðir hún lesendur enn í ævintýraför og opnar nýja sýn á slóðir víkinga í Austur-Evrópu.
 
 

Tengt efni