SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir20. febrúar 2025

HRINGSÓLAÐ Í BARSELÓNU - Um Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur

Rán er fimmta skáldsaga Álfrúnar Gunnlaugsdóttur (2008) og var nýlega kvöldsaga á rás eitt. Líkt og í fyrri bókum Álfrúnar er framvindan öðrum þræði tengd pælingum um frelsi, mannréttindi, frið og lýðræði. Í bakgrunni sögunnar er spænska borgarastyrjöldin sem geisaði á fjórða áratug síðustu aldar.

Rán er eldri kona, búsett í Sviss, hlutlausu landi velmegunar og auðsældar. Á leið sinni til Íslands dvelur hún örstutt í Barselónu en hún var þar námsmaður á valdatíma Francos. Stúdentaóeirðir, handtökur og pyntingar voru þá daglegt brauð. Um leið og hún rifjar upp gamla tíma reynir hún að skilja fortíð sína og kemst þá að ýmsu óþægilegu um sjálfa sig. Hún er undarlega utangátta, eins og hún hafi ekki verið þátttakandi í lífinu. Hún er í rauninni eins og „líkneskjan“ sem hún sér á ferð sinni um götur Barselónu (48), gullhúðaður látbragðsleikari sem gerir kúnstir fyrir klink, enda kemur leikur hans illa við hana. 

Tími og fjarlægð leika stórt hlutverk í sögunni. Rán lítur yfir lífshlaup sitt og reynir að átta sig á því hvers konar manneskja hún sé. „Svo virðist sem óbrúanlegt gap hafi myndast milli mín og stúlkunnar sem ég var“ (60). Sagan er sögð ýmist í 1. eða 3. persónu, eins og til að undirstrika þetta gap og draga fram fjarlægðina.

Hringsól Ránar um borgina Barselónu vekur upp ljúfsárar minningar og erfiðar spurningar um ástina, hikið og blinduna í lífinu og ósjálfráð viðbrögð hennar við marmarastyttu af Maríu mey án jesúbarnsins í Þjóðarhöllinni endurspegla djúpstæða sektarkennd hennar. Borgarmynd Barselónu leikur stórt hlutverk í sögunni, veitingastaðir, listasöfn, sólbökuð torg og þröngar götur verða ljóslifandi.

Rán er útpæld og táknhlaðin saga, þrungin femínískum boðskap. Einstaklega vel skrifuð, af skapandi táknsæi og listfengi. Engin afgerandi svör fást í uppgjörinu en það er erfitt að fyrirgefa, bæði sjálfum sér og öðrum. Í lok sögunnar veltir Rán fyrir sér hver sé eiginlega óðurinn til lífsins þegar upp er staðið. En þá er dauðinn á næsta leiti, í líki flagarans, „tangósjarmörsins“, sem hefur elt hana um alla borgina. Glíma Ránar skilar einhvers konar sátt og skilningi og þá er betra seint en aldrei.

(lengri útgáfa af ritdómnum, sjá hér:)

Tengt efni