SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir14. maí 2025

MAÍSTJARNAN VEITT Í DAG

 

Í dag verður tilkynnt hver hlýtur MAÍSTJÖRNUNA fyrir ljóðabók útgefna 2024. Verðlaunin hafa verið veitt síðan 2017 og að þeim standa Landsbókasafn-Háskólabókasafn og Rithöfundasamband Íslands. Afhending Stjörnunnar fer fram í Þjóðarbókhlöðunni kl. 15 í dag.

Sex ljóðskáld eru tilnefnd til verðlaunanna, hér á eftir fer nafnalistinn, auk umsagna dómnefndar en í henni sátu rithöfundarnir Kamilla Einarsdóttir og Sölvi Björn Sigurðsson:

 

 

Þórdís Gísladóttir fyrir Aðlögun

 

 

Aðlögun er ljúfsár og fyndin bók um hið hversdagslega, ógeðslega og fallega og óþolandi sem við þurfum að aðlaga okkur að og stundum umbera. Ljóðin eru beitt, háðsk og snerta lesandann á djúpan og óvæntan hátt.

 

 

Sigurbjörg Þrastardóttir fyrir Flaumgosa

 

Í Flaumgosum dregur Sigurbjörg Þrastardóttir nýjar og oft býsna skemmtilegar línur í þann skáldskaparheim sem hún hefur skapað í fyrri verkum. Ljóðin eru mörg hver galsafengin og fyndin, myndirnar lævísar og tónninn leikandi á mörkum kankvísi og kaldhæðni. Í eins konar kómedíu úr heimi hversdagsins er furðan aldrei langt svo hárfín spennan milli ljúfsemdar og launráða skapar heildstætt safn ljóða sem gaman er að lesa.

 

 

 

Sunneva Kristín Sigurðardóttir fyrir Ógeðslega hluti

 

„Hér koma saman þýð og blátt áfram prósaljóð sem svipar á tíðum til örsagna eða dagbókarbrota sögumanns sem skyggnist yfir farinn veg - og svo styttri ljóð sem flest hver fela í sér auðlæsa merkingu. Líðandin er allt um lykjandi í hlýrri og lágstemmdri ljóðabók.

 

 

 

Anton Helgi Jónsson fyrir Ég hugsa mig

 

 

Að lesa bókina Ég hugsa um mig er eins og að fara í partý og heyra brot úr mörgum skemmtilegum samtölum um það sem hefur drifið á daga fólks í gegnum lífið. Bókin fjallar um hvernig við metum okkur sjálf og sambönd okkar við aðra og hvernig við reynum að ná sátt þegar við lítum til baka.

 

 

Árni Larsson fyrir Geðhrærivélar

 

Óhætt er að segja að ljóðmælandi Geðhrærivéla birtist lesanda í senn sem eins konar spámaður og utangarðsmaður. Hinum ýmsu flötum samtímans eru oftar en ekki sendar lítið eitt eitraðar pillur, hvort sem andófið snýr að stjórnmálum, lífsvenjum eða sævarlitlu sálarlífi nútímamannsins. O tempora, o mores! var einhvern tímann sagt. Styrkur bókarinnar liggur þó ekki síst í því að hún forðast fremur predikanir en glettni og kerskni, og óvæntar myndirnar glæðast lífi með frumlegu tungutaki,“ segir í umsögn dómnefndar.

 

 

Eyþór Árnason fyrir Þar sem dragsúgurinn er hvítur refur 

 

 

„Hér koma saman þýð og blátt áfram prósaljóð sem svipar á tíðum til örsagna eða dagbókarbrota sögumanns sem skyggnist yfir farinn veg - og svo styttri ljóð sem flest hver fela í sér auðlæsa merkingu. Líðandin er allt um lykjandi í hlýrri og lágstemmdri ljóðabók,“ segir í umsögn dómnefndar.

 

 

 

 

 

Tengt efni