Soffía Auður Birgisdóttir∙15. maí 2025
ÞÓRDÍS GÍSLADÓTTIR HLAUT MAÍSTJÖRNUNA
Ljóðabókaverðlaunin MAÍSTJARNAN sem veitt voru í gær komu í hlut Þórdísar Gísladóttur fyrir ljóðabókin Aðlögun. Þetta var í annað sinn sem Þórdís er tilnefnd til Maístjörnunnar, bók hennar Óvissustig var einnig tilnefnd 2017.
Í ritdómi um Aðlögun, sem lesa má hér á vefnum, segir Sigurlín Bjarney Gísladóttir meðal annars að ,,það sem gerir mörg af ljóðunum í bókinni skemmtileg er einhver tegund af lúmskri lífsgleði eða prakkaraskap, sem mætti kalla grallaragleði".
Við óskum Þórdísi hjartanlega til hamingju með Maístjörnuna!