SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir10. júní 2025

ÁÐUR EN ÉG BRJÁLAST

 

Soffía Bjarnadóttir var að senda frá sér nýja skáldsögu með þeim skemmtilega titili Áður en ég brjálast. Soffía hefur skrifað skáldsögur, ljóð og leikrit en Áður en ég brjálast er þriðja skáldsaga hennar, þær fyrri eru Segulskekkja (2014) og Hunangsveiði (2019).

Undirtitill nýju skáldsögunnar er Játningar af miðjunni og að sögn höfundar vísar hann meðal annars til þess að vera á miðjum aldri og játar Soffía að í skáldsögunni séu sjálfsævisögulegri þættir, sögukonan og líf hennar er byggð að hluta til á Soffíu sjálfri en skáldskapurinn ræður þó för.

Soffía hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir fyrstu skáldsögu sína og fyrir ljóðabókina Verði ljós, elskan hlaut hún tilnefningu til Maístjörnunnar. 

Hlýða má á viðtal við Soffíu um nýju bókina í þættinum Víðsjá á rás 1 frá 2. júni, hér.

Tengt efni