SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir11. júní 2025

DÚKKUVERKSMIÐJAN

Komin er út þriðja skáldsaga Júlíu Margrétar Einarsdóttur, og ber þann forvitnilega titil Dúkkuverksmiðjan.

Í kynningu útgefanda segir:

 

Stína og Grímur láta drauminn rætast og opna veitingastað í afskekktum firði fyrir vestan. Brátt er Dúkkuverksmiðjan orðin hjarta Salteyrar og það eina sem skyggir á gleðina er barnleysið. Þegar dóttirin langþráða loksins birtist reynir hún mjög á ástríka foreldrana, enda er stúlkan eins og lítill hvirfilbylur; eirðarlaus, uppátækjasöm og þjökuð af martröðum.

Milla litla og Reynir besti vinur hennar vaxa úr grasi í öruggum faðmi þorpsins umkringd himinháum fjöllum og óblíðum náttúruöflum. Samband þeirra er afar náið en þegar þau stálpast kemst ástin í spilið og flækir málin svo um munar. En úr fjarlægð fylgist dularfullur maður með Millu og lúrir á leyndarmáli sem mun umturna öllu.

Júlía Margrét Einarsdóttir er sögumaður af guðs náð, í senn smellin og einstaklega næm á mannfólkið í öllum sínum breyskleika. Í þessari þriðju skáldsögu sinni færir hún okkur heilt þorp – segir sögu íbúanna á hlýlegan og nostalgískan hátt án þess að gefa nokkurn afslátt af stóru spurningunum um ástina, lífið og dauðann.

 

Fyrri skáldsögur Júlíu Margrétar, Drottningin á Júpíter (2018) og Guð leitar að Salóme (2021) vöktu mikla athygli og ljóst er að hér er á ferðinni höfundur sem vert er að fylgjast með.

 

 

Tengt efni