SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir12. febrúar 2026

HVAÐ SEGIR DÓMNEFNDIN?

Nú liggur fyrir hver hrepptu íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropann fyrir árið 2025. 
Ritstjórn skáld.is sendir höfundunum öllum bestu hamingjuóskir um leið og tilnefndir og allir hinir sem lögðu sig fram fá bestu kveðjur.
 
Vert er að lesa sér til um bækurnar sem vermdu toppsætin, byrja á lokaumsögnum dómnefnda og kynna sér hver sátu í hverri nefnd.
 
Ritdóma og umfjallanir um nokkur verkanna er að finna hér á vefnum. 
 
Sigrún Pálsdóttir
Blái pardusinn: hljóðbók
 
Umsögn lokadómnefndar:
Blái pardusinn er djörf formtilraun í íslenskum bókmenntum. Bókin ber undirtitilinn Hljóðbók, sem vísar til vinsællar sagnamiðlunar í seinni tíð en hún á sér jafnframt eldri fyrirmyndir, til dæmis í útvarpi og við rúmstokk barna. Í verki Sigrúnar er hljóðið flutt yfir í bókartexta, í verki þar sem þrír hlustendur bókarinnar koma við sögu. Tvö þeirra hafa reyndar misst af drjúgum hluta hennar en þriðji hlustandinn kemur þeim til aðstoðar og þar með má segja að hugtakið „hljóðbók“ hafi teygt sig yfir í endursögn og samræður um inntak og gildi skáldverka, í þessu tilviki um örlög aðalpersónunnar, einfarans og heimskonunnar Lönu Marteinsdóttur. Hún stóð á sínum tíma frammi fyrir brothættri heimsmynd á sögulegum átakatímum; mynd sem er um margt að teiknast upp að nýju um þessar mundir. Á einum stað í textanum er vikið að „skurðpunkti skáldskapar og sagnfræði“ og sagan sjálf spyr ögrandi spurninga um einmitt þennan skurðpunkt sem og hin ýmsu tengsl sögulegs skilnings, máttar skáldskaparins og lífsferils mannverunnar. Blái pardusinn er ögrandi og spennandi bók – og það gildir um hana, eins og lífið, að lesandi fær ekki að vita allt.
 
Dómnefnd skipuðu:
Davíð Roach Gunnarsson, formaður dómnefndar, Guðrún Garðarsdóttir og Gyða Sigfinnsdóttir
 
 
Kristín Svava Tómasdóttir
Fröken Dúlla: ævisaga
 
Umsögn lokadómnefndar:
Starf Jóhönnu Knudsen á vegum hins opinbera í Reykjavík á tímum síðari heimsstyrjaldar hefur ekki hlotið góð eftirmæli, svo vægt sé til orða tekið. Hún hefur verið umtöluð sem harðsnúinn siðgæðisvörður, jafnvel þannig að ætla mætti að hún hafi borið meginábyrgð á viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við „ástandinu“ svokallaða. Í bókinni Fröken Dúlla fjallar Kristín Svava Tómasdóttir ítarlega og vafningalaust um þessi verkefni hjúkrunarkonunnar sem gerðist lögreglukona um hríð, og þannig veitir höfundurinn lesendum sínum tækifæri til að ígrunda þetta hlutverk Jóhönnu frá mismunandi sjónarhornum. En það gerðist margt annað áhugavert í lífi Jóhönnu og í verki sínu birtir Kristín Svava marghliða og heildstæða mynd af öllum æviferli þessarar konu sem var í senn óvenjuleg og sjálfstæð en jafnframt einlæg fjölskyldumanneskja. Þetta er sérstaklega vel skrifuð, víðsýn og grípandi ævisaga, unnin af fræðilegri alúð og hæfileika til að tengja persónusögu Jóhönnu við umfangsmikið breytingaskeið íslensks þjóðfélags.
 
Dómnefnd skipuðu:
Björn Teitsson, Dagrún Ósk Jónsdóttir, formaður dómnefndar og Magnús Lyngdal Magnússon
 
Ævar Þór Benediktsson og Elín Elísabet Einarsdóttir myndhöfundur
Skólastjórinn
 
Umsögn lokadómnefndar:
Hið ómögulega gerist: 12 ára drengur, Salvar að nafni, sækir um embætti skólastjóra og fær starfið. Með lista fullan af hugmyndum og viljann að vopni reynir hann sitt besta til að bæta líðan nemenda, til dæmis með því að hafa kandífloss í hádegismat og grís í hverjum bekk. Þetta er galsafengin og bráðskemmtileg en einnig vel unnin og íhugul saga um lykilstofnun þjóðfélagsins, þar sem börn, unglingar, skólastarfsfólk og foreldrar eiga mikilvæg og margvísleg samskipti. Lesendur eru jafnframt hvattir til umhugsunar um vald, skilning, ábyrgð, viðmót og samvinnu á slíkum stað. Persónur bókarinnar eru fjölbreyttar og marglaga en eiga það sameiginlegt að vilja gera það sem er skólanum fyrir bestu, þótt þær séu ekki endilega sammála um brýnustu viðfangsefnin hverju sinni.
 
Dómnefnd skipuðu:
Andri Már Sigurðsson, formaður dómnefndar, Gunnur Vilborg Guðjónsdóttir og Karitas Mörtudóttir Bjarkadóttir.
 
 
 
Blóðdropinn – glæpasagnaverðlaun:
Margrét Höskuldsdóttir
Lokar augum blám
 
Umsögn lokadómnefndar:
Skáldsagan Lokar augum blám gerist á sjö dögum á Vestfjörðum. Hvarf tveggja manna ýtir af stað lögreglurannsókn. Í stuttum og snörpum köflum kynnast lesendur umtalsverðum fjölda fólks á ýmsum stöðum. Innbyrðis tengsl kaflanna skýrast smám saman og með þeim fléttar höfundar atburðarás vikunnar haganlega, ásamt atriðum úr forsögu og fyrri kynnum persónanna. Velheppnað raunsæissnið sögunnar byggist meðal annars á hinu vestfirska umhverfi sem höfundur endurskapar af staðarþekkingu og næmni sem skilar sér í vel skrifuðum texta. Spennan í verkinu er hins vegar tengd tímanum. Hann lætur ekki hemja sig og teygir sig út fyrir viðburði þessarar viku, aftur í fortíð þar sem reynast vera sár og draugar er virðast ætla að vakna til nýs lífs.
 
Dómnefnd skipuðu:
Ásrún Matthíasdóttir, formaður dómnefndar, Brynhildur Björnsdóttir og Ómar Valdimarsson.
 
 
Heimild: Rithöfundasamband Íslands og isllit.is

Tengt efni