MIKIL FLETTIORKA OG MARGIR ÞRÆÐIR
Margrét Sigrún Höskuldsdóttir. (2025). Lokar augum blám. Vaka-Helgafell, 327 bls.

Margrét Sigrún Höskuldsdóttir er tiltölulega ný rödd á sleipu svelli spennusagna. Hún sendi frá sitt fyrsta verk, Dalinn, árið 2022 sem hlaut góðar viðtökur. Það sama má segja um spennusöguna Í djúpinu sem kom út tveimur árum síðar. Í fyrra kom svo út bókin Lokar augum blám sem stenst vel allar væntingar ánægðra lesenda.
Lokar augum blám er kynnt svo á bókarkápu:
Á miðju sumri hverfa tveir ungir kajakræðarar sporlaust vestur í Dýrafirði. Rannsóknarlögreglumaðurinn Bergur er fluttur á Flateyri og tekur málið að sér, ásamt fyrrverandi samstarfskonu sinni, Rögnu, sem er kölluð vestur. Á sama tíma vinnur par að endurbótum á gömlu húsi á Flateyri. Eftir ógæfusöm ár í höfuðborginni þrá þau kyrrlátt líf á fallegum stað en húsið reynist eiga sér nöturlega sögu.

