SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir13. mars 2026

Í ÓTTASKÓGI - HUGVÍSINDAÞING 2026

Hugvísindaþing Háskóla Íslands stendur nú yfir. Verið öll velkomin! Tvær ritstjórnarkonur verða með erindi á málstofu um skáldkonuna Nínu Björk Árnadóttur (1941-2000).

Nína Björk er í hópi íslenskra skáldkvenna sem brutu blað í íslenskri bókmenntasögu. Hún sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók árið 1965 og vakti athygli fyrir ögrandi yrkisefni og óvenjulega nálgun. Ljóðabækur hennar urðu níu talsins en einnig skrifaði hún sögur og leikverk. Í ár eru liðin 85 ár frá fæðingu hennar en hún lést aðeins tæplega 59 ára gömul.

Í málstofu á Hugvísindaþinginu munu þátttakendur nálgast höfundarverk Nínu á ýmsan hátt. Auk tveggja fyrirlestra bókmenntafræðinga verður kynnt viðamikið samstarfsverkefni hóps listakvenna sem eru að vinna óperuverk, kvikmyndaverk og hljómplötu með sönglögum, allt unnið út frá skáldskap Nínu Bjarkar undir yfirskriftinni Í Óttaskógi. 

Soffía Auður Birgisdóttir skipulagði málstofuna.

 

Tengt efni