NÝ BÓK FRÁ ÞÓRHILDI ÓLAFSDÓTTUR

Þórhildur Ólafsdóttir hefur sent frá sér nýja skáldsögu sem kallast Framtíðin á ferðinni. Bókinni er lýst sem hugstæðri skáldsögu sem lýsir sambandi ungmenna úr ólíkum menningarheimum á næman og áhrifaríkan hátt.
Ekki er ólíklegt að Þórhildi byggi frásögnina af eigin reynslu en hún hefur í fyrri verkum sínum sótt til bernsku sinnar og líf og umbreytt reynslu í bæði ljóð og sögur. Síðast sendi hún frá sér bókina Með minnið á heilanum (2025) og þar áður skáldsöguna Efndir (2021) og ljóðabókina Brot úr spegilflísum (2020).
Þórhildur hefur búið og starfað erlendis lengst af starfsævinnar og byrjaði að senda frá sér skáldverk fremur seint en segja má að hún hafi komið fram sem fullþroska höfundur strax með fyrstu bókinni. Bækur Þórhildar eru mjög vel skrifaðar og áhugaverðar, eins og lesa má um í umfjöllunum hér á vefnum. Þá hefur hún einnig fengist við þýðingar og hefur þýtt tvær af bókum Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux á nýliðnum árum.


