Þórhildur Ólafsdóttir
Þórhildur Ólafsdóttir heitir fullu nafni Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir og er fædd árið 1953 á Hvammstanga.
Hún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1973 og nam franskar bókmenntir og málvísindi við Háskólann í Orléans, Frakklandi og doktorspróf þaðan árið 1982. Á níunda áratug síðustu aldar var hún lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands.
Frá 1988 hefur Þórhildur búið í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún vann í 25 ár í ýmsum deildum Evrópuráðsins. Hún var meðal annars stjórnandi skrifstofu jafnréttismála kvenna og karla (1993-2002). Frá 2003 vann hún við menntamálaskrifstofu Evrópuráðsins þar sem hún byggði upp sérstaka deild um mannréttinda- og lýðræðiskennslu. Síðustu árin í starfi sínu þar var hún yfirmaður menntamála og æskulýðsmála.
Ljóðabókin Brot úr spegilflísum (2020) er fyrsta ljóðabók Þórhildar og kom út hjá Skriðu bókaútgáfu. Hún hefur áður birt ljóð í Tímariti máls og menningar ásamt smásögu. Þórhildur þýddi skáldsöguna Memed mjói eftir Yashar Kemal úr tyrknesku árið 1985 og kom sú bók út hjá Máli og menningu. Hún hefur einnig birt smásögur þýddar úr tyrknesku og frönsku í tímaritum, t.d. eftir J.M.G. Le Clézio og Yashar Kemal.
2021 kom út fyrsta skáldsaga Þórhildar, Efndir, einnig gefin út hjá Skriðu.
Þegar Þórhildur vann við Háskóla Íslands gerði hún einnig nokkra útvarpsþætti um franskar bókmenntir.
Ritaskrá
- 2021 Efndir
- 2020 Brot úr spegilflísum
Þýðingar
- 1985 Yashar Keman: Memed mjói