FORSETAFRÚIN SEGIR FRÁ - Ný bók frá Elizu Reed
Eliza Reed hefur sent frá sér nýja og áhugaverða bók. Sú heitir: Og svo varð ég forsetafrú. Bókin kemur jafnframt út á ensku í Kanada og Bandaríkjunum. Áður hefur Eliza skrifað skáldsöguna Dauði diplomata (2025) og Sprakka (2021) um íslenska kvenskörunga. Eliza hlaut sérstök heiðursverðlaun fyrir ómetanlegt framlag í þágu íslenskra bókmennta og ritlistar árið 2024. Hún hefur talað fyrir mikilvægi íslenskra bókmennta og þess að þjóðin hafi aðgengi að þýddu erlendu efni sem víkki sjóndeildarhringinn.
Nýja bókin er um spennandi efni, fjögurra barna móðir sem gift er háskólaprófessor verður allt einu forsetafrú landsins. En þetta er ekkert Öskubuskuævintýri samt. Eliza rifjar upp eftirminnilegan tíma sem forsetafrú og veitir lesendum innsýn í heim þar sem formlegheitin ráða ríkjum og opinberar heimsóknir og móttökur eru stór hluti af starfinu en það getur verið snúið að setja sig inn í það allt saman.
Það má sannarlega segja að Eliza hafi látið til sín taka í því sem henni þótti skipta máli meðan hún hafði aðstöðu til. Hún var óhrædd við að tala íslensku með erlendum hreim og hló að eigin mismælum. Hún talaði fyrir jafnrétti kynjanna og gerði góðlátlegt grín að þeirri þversögn að vera fyrst og fremst skilgreind út frá afrekum eiginmannsins.
Í bókinni segir Eliza einnig frá uppvexti sínum í Kanada, árunum í Bretlandi, ferðalögum á fjarlægar slóðir og hvernig það var að flytja til Íslands og verða útivinnandi fjögurra barna móðir og síðar forsetafrú og athafnakona á sviði bókmennta og femínisma. Allt byggist það á þeirri bjargföstu trú minni að hvert einasta okkar geti stuðlað að jákvæðum breytingum á heiminum ef við veigrum okkur ekki við því að taka áhættu og nýtum tækifærin sem okkur bjóðast“ segir m.a. í nýju bókinni.
Myndina birti Eliza á facebooksíðu sinni í morgun. Til hamingju með bókina Eliza!
Mynd af facebook síðu Elísu í dag


