TÖFRASTUNDIR ERU TIL - Raunamæddi risinn endurútgefinn
Raunamæddi risinn, tímalaus perla eftir verðlaunahöfundinn Áslaugu Jónsdóttu, er nú loksins fáanleg að nýju í betri bókabúðum bæjarins.
Bókin kom fyrst út árið 1995. Áslaug skrifar og auðvitað myndskreytir m.a. Skrýsmslabækurnar frábæru og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, sjá hér.
Um söguna
Söguhetjan er raunamæddur risi, sem aldrei hló. Hann heldur af stað í langa ferð í leit að hlátrinum og lærir margt nýtt... Þetta er hugljúf og falleg saga með gullfallegum myndum.
Í risabókinni hefur Áslaug nýtt sér flóru Íslands og allstaðar í myndskeytingunni má finna blöð maríustakks, hundasúru og annarra plantna. Á kápumynd líta blöð brennisóleyjar út eins og mannhæðarhá tré. Risinn sjálfur er samt oftast sýndur aðeins að hluta til á opnum og er þannig mikil stærð hans undirstikuð.
Sagan kennir börnum nöfn íslensku dýranna og heitin á hljóðum þeirra. Seinna myndskreytti Áslaug útgáfu á Risanum eigingjarna eftir Oscar Wilde sem út kom 2001.
Töfrastundir eru til
Áslaug er gott dæmi um listamann sem er jafnvígur á texta og mynd og virðist henni einnig farnast vel að vinna með öðrum textahöfundum. Á vefsíðu Bókmenntavefsins lýsir Áslaug sjálf þeirri köllun sinni að skrifa og myndskreyta barnabækur:
Ég skrifa texta af því ég teikna. Ég teikna af sömu ástæðu og aðrir skrifa. Það sækja að mér sögur og ég
skoða lífið í gegnum myndir og orð. Ég er heilluð af þessari misflóknu samsetningu pappírsarka sem
virðast geta rúmað allt milli himins og jarðar og kölluð er BÓK. Ég er einlægur aðdáandi myndabókarinnar og
mér finnst ég varla byrjuð að skoða möguleika hennar og leyndardóma. Sjálfsagt má væna mig um fortíðarþrá þegar barnabækur eiga í hlut, en það vita allir, sem lásu bækur í barnæsku, að töfrastundir eru til. Það eru þessar stundir sem ég minnist og það er þessi tilfinning fyrir óendanleika og frelsi sem ég upplifi í heimi barnabókanna.
Það er fagnaðarefni að geta endurnýjað kynnin við risann raunamædda. Lesist fyrir sem flest börn sem fyrst!



