Ritstjórn∙18. júní 2025
LJÓSLÍNUR eftir Þórdísi Helgadóttur
Þórdís Helgadóttir gaf okkur leyfi til að birta magnað ljóð sitt, Ljóslínur, sem var flutt á Austurvelli af Katrínu Halldóru Sigurðardóttur í hlutverki Fjallkonunar á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2025.
Þórdís er á miklu flugi um þessar mundir., smásagnasafn hennar Keisaramörgæsir vakti verðskuldaða athygli og skáldsaga hennar Armeló er tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár.
Við þökkum kærlega fyrir að fá að birta ljóðið!
Ljóslínur
Útí birkiilmeftir vetursetuLjósið í brjósti okkarer júníbirtaKitlið í maganumkemur frá jörðinniHún er parísarhjólog við, í augnablikinu,í augnhæð við fjöllinUppog út*Kitlið í maganumaf því að hjörtu okkar eru ungviðiog sérhver hátíð er hátíð barnannaJibbí – ég meina það – jey!Uppí brekkur og út á torgVið blöndum geðií nýjum hlutföllumBara í sumar! Nýtt!Blöndumstvið uppáhalds og óþolandiannað fólkViðöll*Skóflum rjómabólstrumúr blámanumbítum í vöffluhjarta með sultuÞað vex rabarbari í bakgarðinum – hann er voninFyrstur upp á vorinþegar nágranninn gefur okkur hnausVonin er viðleitniVoner vinna*Þetta man fjallakellingmeðan allt liggur í dvalaRótföst í hraunbreiðutrú hennará okkurStolt, júaf stórvirkjumen mest af mildiog mennskuÞannig eru mömmurSérsvið þeirraskjöldur og skjól*Hún man okkur máttvanaog mjúkhöfðaHjálparlófi um litla höndmeðan heilt þorp hélt undirGerði brjóst okkar þannig úr garðiað það rúmarsólarhringssólog sorgir heimsinsef við leggjum þausamanAllar mömmureigaöll börn*ÚtBröltum berfætt í móa,vöðum læki, berjabláÁ sólstöðumsigrar ekkert ljósiðNóttin breiðir bleikt þel úr birtuyfir brúnjörð og mójörðog margvísa landsins moldVið erum börn þegar við sofummeð mosa á milli tánnaHjörtun ung og varnarlausopinfyrir ljósi
Þórdís Helgadóttir, 2025