SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir22. maí 2026

FRÁ SJÓNARHORNI DÚFNA - VAL SOFFÍU AUÐAR

 

Í ljóðabókum sínum vinnur Guðrún Hannesdóttur gjarnan með eitthvert þema.

Í þeirri fjórðu, slitur úr orðabók fugla (2014), er þetta einkar skemmtilega gert; ljóðin eru öll um fugla og flest ort út frá sjónarhorni þeirra.

Upphafsljóð bókarinnar hefur yfirskriftina búr og hljómar þannig:

 

 
 
búr
 
ég sá hann aldrei
nema eins og hvítt strik
búrið var of þröngt, við of margar
 
svipuhöggin heyrði ég
sá gullpeningana þyrlast í loftinu
dúfnasalana rífa hár sitt og klæði
 
allt fór um koll
kámugar tágarnar bognuðu, brustu
búrið á hliðina, dyrnar hrukku upp
 
svo ilmskært loftið
streymdi undir vængi
og bar okkur hærra og hærra
 
uns musterishæðin sást ekki lengur
 
enn veit ég ekki
hvað honum gekk til
 
en söm var hans gerðin 

 

Það kann að vera að ljóðið vefjist eitthvað fyrir einhverjumum lesendum við fyrsta lestur, en þá má hafa í huga lýsinguna á því þegar Jesús veltir um borðum víxlaranna og búrum dúfnasalana í Markúsar guðspjalli - og lesa svo ljóðið aftur.

 

 

 

Tengt efni