HREIÐUR, EGG OG ÆÐARDÚNN eftir Sigrúnu Eldjárn
ÞJÓÐLEGUM FRÓÐLEIK MIÐLAÐ Á SKEMMTILEGAN HÁTT

Sigrún Eldjárn hefur sent frá sér nýja barnabók nefnist Hreiður, egg og æðardúnn og er í svipuðum anda og síðasta bók hennar Torf, grjót og burnirót sem kom út í fyrra. Aðalpersónur bókanna tveggja eru þær sömu, systkinin Una og Ormur sem eru í góðum samvistum við ömmu og afa og læra af þeim sitthvað um gamla daga, íslenska þjóðhætti, búskap og náttúruna.

Í fyrri bókinni ráku Una og Ormur augun í gamla ljósmynd af torfbæ heima hjá afa og ömmu í kjölfarið fræðir afi þau um þessi gömlu hýbýli Íslendinga. Ekki er látið þar við sitja heldur ákveða afi og amma að sumarbústaðurinn sem þau eru að fara að reisa verði hlaðinn úr torfi eftir gömlum aðferðum. Þar fá börnin að sjálfsögðu að taka þátt. Þarna er sem sagt lagt upp með spurninguna um það hvernig torfhúsin verða til og börnunum er bæði kennt 'bóklega' með frásögn og myndum, sem og verklega með byggingu sumarbústaðarins.
Í nýju bókinni leggur Sigrún Eldjárn upp með spurninguna: Hvaðan kemur dúnmjúki dúnninn í dúnsænginni hennar ömmu? og því er svarað út í hörgul á skemmtilegan hátt og með ýmsum útúrdúrum, eins og henni er lagið.
Þegar Una og Ormur eru í næturgistingu hjá ömmu og afa fer Una að velta fyrir sér hvers vegna sængin hennar ömmu sé svona mjúk og hlý og hvað sé inni í henni. Það verður ömmu tilefni til að segja þeim frá því hvernig æðardúnn er nýttur og leiðir til þess að amma og afi fara með börnin í heimsókn til Eddu ömmusystur sem býr á æskuheimili ömmu í Litluvík og ræður yfir æðarvarpi. Þar fá börnin að hjálpa til við að undirbúa komu fuglanna og létta þeim hreiðurgerðina. Þau hreinsa úr gömlum bíldekkjum og litlum húsum fyrir æðarfuglinn, setja niður flögg og vindrellur til að fæla burt varginn og læra þar ýmis fuglaheiti:,,„[...] krummi gamli, kolsvarti og bæði svartbakur og skúmur ... og ekki má gleyma rebba og minknum. Allir vilja þeir éta egg og unga frá kollunum og þess vegna köllum við þá varg" (23) - útskýrir Edda fyrir börnunum. Systkinunum finnst æðarvarpið mikið ævintýraland og fá að koma aftur í heimsókn síðar um sumarið og taka þátt í dúntekju og hreinsun.
Ef einhverjir halda að þetta viðfangsefni sé þurrt og 'gamaldags' og jafnvel þreytandi fyrir börn er það reginmisskilningur. Undirrituð er búin að lesa nýju bókina oftar en einu sinni fyrir þriggja og fjögurra ára ömmustráka sem fylgdust með af athygli og skemmtu sér konunglega. Sigrún Eldjárn kann nefnilega þá list að segja sögu á fjörlegan hátt með stöðugum vísunum í reynsluheim barnanna þótt hún sé að fjalla um efni sem þau hafa enga reynslu af. Eins og til dæmis þegar amma segir að gaman væri að sýna börnunum æðarvarpið: ,,- Æðarvarp! Bíddu ... er það eins og sjónvarp ... með æðar? spyr Ormur hikandi" (8).
Reikna má með því að öll þau börn sem fá að kynnast bókinni læri ný orð og hugtök eins og Una og Ormur gera: æðarvarp, æðarkolla, bliki, varpsvæði, æðardúnn, dúntekja, dúnhreinsun... og svo mætti lengi telja. Slík orð, sem vænta má að fæst börn þekki fyrir, eru feitletruð í textanum og reyndar gildir það um fleiri orð, til dæmis fuglaheiti.
Eins og gildir um flestar barnabækur Sigrúnar Eldjárn þá eiga myndir og texti frábæran samleik í bókunum um Unu og Orm. Teikningar Sigrúnar eru litríkar og fjörlegar, sýna það sem verið er að segja frá, en bæta líka alltaf einhverju við, oft einhverjum smáatriðum sem börnin hafa gaman af að uppgötva.
Á lokaopnu bókarinnar geta börnin síðan skoðað ýmislegt sem þau þekkja og kunna nú betur skil á eftir lestur bókarinnar. Þar getur að líta dúnsæng, dúnsvefnpoka, dúnúlpu og fleira sem er mjúkt og notalegt.
Kannski hefur þessi hugmynd, að miðla þjóðlegum arfi til nýrra kynslóða á skipulegan hátt, vaknað hjá Sigrúnu Eldjárn þegar hún skrifaði bókina Sigrún í safninu (2024) um reynslu sína af því að búa sem barn í Þjóðminjasafninu. Ég geri ráð fyrir - og vona - að hún sendi frá sér fleiri bækur af þessum toga, það er frábærlega gaman að lesa þær fyrir börn og börnin skemmta sér líka!
Þessi ritdómur er skrifaður og frumbirtur á Skáld.is með stuðningi frá Hagþenki.
![]()


