SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Anna frá Moldnúpi

Sigríður Anna Jónsdóttir fæddist 20. janúar 1901 í Gerðarkoti undir Vestur-Eyjafjöllum.

Foreldrar hennar voru Jón Eyjólfsson og Sigríður Þórðardóttir og með þeim flutti Anna um vorið að bænum Moldnúpi sem hún kenndi sig síðar við.

Anna var elst þriggja systkina en hún missti móður sína í bernsku og ólst upp hjá föður sínum sem hún segir hafa veitt sér menningarlegt uppeldi og aldrei reynt að hemja ævintýraþrá sína. Anna ólst upp við hefðbundin íslensk sveitastörf, bóklestur og samræður. Sem unglingur sótti hún einnig sjóróðra með föður sínum undan suðurströndinni. Anna naut átta vikna farkennslu á vetri frá tíu til fjórtán ára aldurs. Þá sótti hún námskeið í vefnaði og var farin að vefa fyrir fólk strax á unglingsaldri.

Þegar Héraðsskólinn á Laugarvatni tók til starfa, opnaðist Önnu möguleiki á frekara námi, og hún var þar í efri bekk veturinn 1929-1930. Til að fjármagna námið tók hún 400 króna víxil sem hún fékk föður sinn og bróður til að ábyrgjast fyrir sig og kallaði heimanmund sinn. Eftir veturinn á Laugarvatni hélt Anna til Reykjavíkur og hóf utanskólanám við Lærða skólann jafnframt því að vinna fyrir sér, einkum með vefnaði. Síðar sótti hún um að fá að sitja einn vetur í skólanum til undirbúnings sjálfu stúdentsprófinu, en var synjað um það. Því miður varð hún því aldrei stúdent, en hún hafði hugsað sér að læra til prests að því loknu, því hún var mjög trúuð. Sjálfsnám stundaði Anna allt til æviloka með lestri, ferðalögum og tungumálanámi og hafði hún mörg tungumál á valdi sínu.

Fyrstu opinberu skrif Önnu voru blaðagreinar. Eftir því sem næst verður komizt, geystist hún fram á ritvöllinn síðla árs 1942 með skeleggri grein í Alþýðublaðinu um kirkjubyggingar í Reykjavík. Úr því varð ritdeila við Sverri Kristjánsson sagnfræðing þar sem Anna fór mikinn. Næstu árin háði Anna ritdeilur við fleiri þjóðþekkta menn um stjórnmál og menningu og kom ætíð fram sem fulltrúi alþýðunnar, hvergi bangin. Hún var sannfærð um að rödd sín og skoðanir ættu rétt á sér, rétt eins og skoðanir „hinna háu herra“. En hún skrifaði líka mikið um málefni heimabyggðar sinnar, svo sem um vanda bænda eftir Heklugos 1947 og og um tapið, sem sveitungar hennar urðu fyrir, þegar bókasafn þeirra varð eldi að bráð.

Um miðja öldina hætti Anna blaðaskrifum að mestu. Þá var hún að nálgast fimmtugt og útþráin hafði fangað huga hennar. Vorið 1947 fór hún sína fyrstu utanlandsferð, síðan aftur á árunum 1948, 1950, 1959 og 1959. Hún ferðaðist m.a. um Danmörku, England, Frakkland og Ítalíu. Um allar þessar ferðir skrifaði Anna bækur, sem og um Ameríkuför sína árið 1964. 

Anna gaf allar bækur sínar út á eigin kostnað og sá að mestu um sölumennskuna líka. Allar ferðirnar fór Anna af miklum vanefnum, en bjartsýni og eljusemi, og ferðaðist samkvæmt einkunnarorðum ömmu sinnar: „Ef guð ætlar manni að lifa, þá veit hann að hann verður að leggja manni eitthvað til”.

Ferðasögur Önnu eru langar og miklar, nákvæmar lýsingar á því, sem fyrir augu bar og hvernig heimurinn kom ferðalangnum fyrir sjónir. Anna hafði mikinn áhuga á menningu þeirra landa, sem hún ferðast um, skoðaði kirkjur, söfn og merkar minjar af miklum dugnaði og lagði sig í líma við að kynnast heimamönnum, hvar sem hún kom. Anna var sparsamur ferðalangur og úr því spinnust margar skemmtilegar aðstæður. Hún þurfti ævinlega að lifa eins spart og nokkrum manni var unnt og samskiptin við þá, sem skutu yfir hana skjólshúsi, voru oft skemmtileg. 

Anna frá Moldnúpi lést í Reykjavík haustið 1979.

Á Moldnúpi er nú rekið gistihúsið Hótel Anna og þar innandyra má sjá mikið af fallegu handverki og vefnaði Önnu.

Sigþrúður Gunnarsdóttir, bókmenntafræðingur, hefur skrifað skemmtilega bók um Önnu frá Moldnúpi og bækur hennar, sem byggð er á lokaritgerð hennar í íslensku við Háskóla Íslands.

Heimildir:

Ragnhildur Richter. Anna frá Moldnúpi. Íslenskar konur – ævisögur (Ragnhildur Richter ritstýrði og skrifaði inngang), Reykjavík: Mál og menning, 2002.

Sigþrúður Gunnarsdóttir, Fjósakona fór út í heim. Sjálfsmynd, skáldskapur og raunveruleiki í ferðasögum Önnu frá Moldnúpi, Reykjavík: Bókmenntafræðistofnun H.Í. og Háskólaútgáfan, 1998

Sigþrúður Gunnarsdóttir, texti á heimasíðu Hótels Önnu á Moldnúpi.


Ritaskrá

  • 1972  Í gengin spor. Æviminningar Jóns Eyjólfssonar bónda á Moldnúpi
  • 1970  Tvennar tíðir
  • 1961  Ég kveikti á kerti mínu. Ferðaþættir frá Ítalíu
  • 1957  Eldgamalt ævintýri
  • 1954  Ást og demantar: ferðasaga um meginlandið til Bretlands 1951
  • 1952  Förukona í París
  • 1950  Fjósakona fer út í heim

 

Þýðingar

  • 2010    A Dairymaid Travels the World (Philip Roughton þýddi á ensku)

 

 

Tengt efni