Ragna Sigurðardóttir
Ragna Sigurðardóttir (Ragnheiður Sigurðardóttir) er fædd í Reykjavík 10. ágúst 1962.
Hún lærði myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og hélt síðan eftir útskrift í framhaldsnám til Hollands. Um skeið bjó hún einnig í Danmörku en er nú flutt til Íslands þar sem hún starfar sem rithöfundur og myndlistarmaður.
Ragna gaf út kverið Stefnumót árið 1987. Tveimur árum síðar kom út önnur bók, Fallegri en flugeldar og aftur liðu tvö ár fram að þriðju bók hennar, 27 herbergi. Í tveimur þessara þriggja bóka eru einnig myndverk eftir höfund.
Árið 1993 kom út skáldsagan Borg og vakti hún talsverða athygli. Hún var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Síðan hefur Ragna sent frá sér fleiri skáldsögur og smásagnasafn Hún hefur einnig ritað greinar í blöð og tímarit og þýtt fjölda skáldsagna á íslensku.
Ragna býr í Bessastaðahreppi.
Ritaskrá
- 2022 Þetta rauða, það er ástin
- 2019 Vetrargulrætur
- 2016 Vinkonur
- 2011 Bónusstelpan
- 2009 Hið fullkomna landslag
- 2000 Strengir
- 1997 Skot
- 1994 Apríkósur og laukar: Smásaga í Tundurdufl
- 1993 Borg
- 1991 27 herbergi
- 1989 Fallegri en flugeldar
- 1987 Stefnumót
Verðlaun og viðurkenningar
- 2016 Ísnálin, fyrir bestu þýddu glæpasöguna: Konan í myrkrinu
Tilnefningar
- 1993 Til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta fyrir Borg
Þýðingar
(í vinnslu)
Þýðingar eftir Rögnu:
- 2021 Ashley Audrain: Grunur
- 2019 Simone van de Vlugt: Þar sem ekkert ógnar þér
- 2019 Lee Child: Engin málamiðlun