SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ragnheiður Gestsdóttir

Ragnheiður Gestsdóttir fæddist í Reykjavík þann 1. maí 1953.

Ragnheiður lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1973 og prófi í listasögu frá háskólanum í Árósum 1979. Hún stundaði einnig nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.

Ragnheiður starfaði sem kennari í nokkrum skólum á höfuðborgarsvæðinu um árabil og var ritstjóri hjá Námsgagnastofnun frá 1990–1996. Hún hefur bæði myndskreytt og skrifað bækur fyrir börn og unglinga, en fyrsta bók hennar, Ljósin lifna, kom út árið 1985.

Ragnheiður hefur endursagt og myndskreytt þekkt íslensk ævintýri, meðal annars Söguna af Hlina konungssyni. Þá hefur hún skrifað talsvert af kennsluefni.

Unglingasögur hennar hafa vakið mikla athygli og hlaut Ragnheiður Norrænu barnabókaverðlaunin árið 2005 fyrir Sverðberann. Sama bók hlaut Barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur árið 2004 en Ragnheiður fékk einnig sömu verðlaun fyrir unglingabókina 40 vikur árið 2001 og Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Leik á borði árið 2000. Þá heiðraði IBBY á Íslandi hana fyrir ritstörf með Vorvindum félagsins árið 2005.

2022 hlaut Ragnheiður glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann fyrir skáldsöguna Farangur.

Ragnheiður Gestsdóttir býr í Hafnarfirði. Hún er gift og á fjögur uppkomin börn.

 


Ritaskrá

  • 2023  Steinninn
  • 2023  Jólaljósaserían
  • 2022  Blinda
  • 2021  Farangur
  • 2019  Úr myrkrinu
  • 2017  Ég hlakka til; mig langar
  • 2012  Myndin í speglinum
  • 2011  Gegnum glervegginn
  • 2009  Hjartsláttur
  • 2005  Regnboginn
  • 2004  Sverðberinn
  • 2001  40 vikur
  • 2000  Stafurinn minn og stafurinn þinn
  • 2000  Leikur á borði
  • 1999  Líneik og Laufey
  • 1996  Sagan af Hlina kóngssyni
  • 1995  Karlssonur, Lítill, Trítill og fuglarnir
  • 1986  Ekki á morgun, ekki hinn

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2022  Blóðdropinn: Íslensku glæpasagnaverðlaunin fyrir Farangur
  • 2009  Dimmalimm: Íslensku myndskreytiverðlaunin fyrir Ef væri ég söngvari
  • 2005  Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir Sverðberann
  • 2005  Vorvindar IBBY fyrir ritstörf
  • 2004  Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir Sverðberann
  • 2001  Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir 40 vikur
  • 2000  Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Leikur á borði

 

Þýðingar

(í vinnslu)

 

Tengt efni