SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ása Marin Hafsteinsdóttir

Ása Marin fæddist 26. júní árið 1977 og ólst upp í Hafnarfirði.

Ása Marin gekk í Öldutúnsskóla öll grunnskólaárin og fór svo í Verzlunarskóla Íslands. Þaðan lá leiðin í Kennaraháskóla Íslands, þaðan sem hún útskrifaðist með B.ed. gráðu og kennsluréttindi á grunnskólastigi.

Í Verzlunarskólanum kynntist hún Ljóðdrekum og fékk góða þjálfun í skáldskaparskrifum í þeim félagsskap. Við útskrift gaf hún út sína fyrstu bók, ljóðabókina Búmerang.

Síðan þá hefur Ása Marín sent frá ljóð, smásögur og skáldsögur.

Frá árinu 2013 hefur hún  sameinað ritlist sína og kennaramenntun og skrifað námsefni fyrir mið- og unglingastig grunnskóla.

 


Ritaskrá

  • 2023  Sjávarhjarta
  • 2022  Elsku sólir
  • 2021  Yfir hálfan hnöttinn
  • 2019  Leynifundur í Lissabon
  • 2016  Og aftur deyr hún
  • 2015  Vegur vindsins – buen camino
  • 2013  Bláar dyr
  • 2009  Að jörðu
  • 2001  Ljóð ungra skálda (ásamt fleiri höfundum)
  • 2000  Wortlaut Island (ásamt fleiri höfundum)
  • 2000  Bók í mannhafið (ásamt fleiri höfundum)
  • 1998  Nema ljóð og sögur III og IV (ásamt fleiri höfundum)
  • 1997  Búmerang 
  • 1994  Ljóðdrekar V (ásamt fleiri höfundum)

 

Heimasíða

asamarin.is

Tengt efni