SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Fríða Ísberg

Fríða Ísberg er fædd árið 1992. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, og grunnprófi í heimspeki og meistaraprófi í ritlist við Háskóla Íslands. Hennar fyrsta útgefna verk er ljóðabókin Slitförin sem kom út árið 2017 hjá bókaforlaginu Partusi. Fyrir ljóðahandritið fékk Fríða nýræktarstyrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta en í umsögn dómnefndar um bókina segir meðal annars: „Slitförin er safn ljóða sem fjalla á ágengan hátt um togstreituna við að brjótast undan áhrifavöldum bernskunnar og finna leiðina að eigin sjálfi. Leiðarstef verksins er sársaukinn sem sprettur úr nístandi sorg milli barns og foreldris. Ljóðin taka pláss, sýna afstöðu og grípa lesendur föstum tökum.“ Sama ár og Slitförin kom út hlaut Fríða þriðju verðlaun í keppninni um Ljóðstaf Jóns úr Vör.

Árið 2018 kom út smásagnasafnið Kláði. Ungt fólk er í aðalhlutverki í flestum sögunum enda fjallar Fríða um málefni eigin kynslóðar í bókinni. Sögurnar gerast í nútímanum í Reykjavík en persónur þeirra eiga það sameiginlegt að klæja bæði í og undan ýmsum viðfangsefnum samtíma síns, meðal annars kynjamisrétti. Fyrir Kláða hlaut Fríða tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2020 og Fjöruverðlaunanna 2019 í flokki fagurbókmennta. Þýðingar á bókinni hafa komið út eða eru væntanlegar á dönsku, úkraínsku og ungversku.

Önnur ljóðabók Fríðu Leðurjakkaveður kom út árið 2019 hjá Forlaginu en þar tekst Fríða á við togstreitu þess að berskjalda sig eða setja upp harðan skráp og vera töffari. 

Fyrsta skáldsaga Fríðu er Merking (2021). Bókin er margradda vísindaskáldsaga en þar er tekist á við pólaríseringu, fordóma og samkennd. Verkið hlaut Bóksalaverðlaunin og var tilnefnt til Fjöruverðlaunanna í flokki fagurbókmennta.

Fríða er hluti af sex kvenna skáldahópi sem kallar sig Svikaskáld. Saman hafa þær gefið út þrjár ljóðabækur; Ég er ekki að rétta upp hönd (2017), Ég er fagnaðarsöngur (2018) og Nú sker ég netin mín (2019) auk einnar skáldsögu Olíu (2021). Auk þess hefur Fríða birt ljóð í ýmsum tímaritum, bæði innlendum og erlendum. Þá skrifar hún bókmenntarýni fyrir Times Literary Supplement og var einn af ritstjórum Meðgöngumála, smásagnaseríu Partusar.

Í byrjun árs 2022 hlaut Fríða Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2021.


Ritaskrá

  • 2021  Olía (með Svikaskáldum)
  • 2021  Merking
  • 2020  Kláði
  • 2019  Leðurjakkaveður
  • 2019  Nú sker ég netin mín (með Svikaskáldum)
  • 2018  Ég er fagnaðarsöngur. Ljóðverk (með Svikaskáldum)
  • 2017  Ég er ekki að rétta upp hönd. Ljóðverk (með Svikaskáldum)
  • 2017  Slitförin

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2017      Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir Slitförin
  • 2017      Nýræktarstyrkur Miðstöðvar íslenskra bókmennta
  • 2017      Þriðju verðlaun í Ljóðstaf Jóns úr Vör

 

Tilnefningar

  • 2021  Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Olíu (með Svikaskáldum)
  • 2020  Til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Kláða
  • 2019  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Kláða
  • 2018  Til Fjöruverðlaunanna fyrir Slitförin

 

Þýðingar

  • 2021  Home (Larissa Darlaine Kyzer þýddi á ensku)
  • 2021  Sverblyachka (Nadezhda Kushni þýddi á úkraínsku)
  • 2020  Kløe (Kim Lembek þýddi á dönsku)

 

Tengt efni