SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir26. október 2023

RITÞING OG MYNDLISTARSÝNING KRISTÍNAR ÓMARSDÓTTUR

Borgarbókasafnið heldur ritþingið, Sjáðu fegurð þína, um skáldskap og listferil Kristínar Ómarsdóttur, laugardaginn 28. október 2023 í Tjarnarbíói kl. 14:00-17:30 og í dag opnar Kristín myndlistarsýningu í sýningarsal Gerðubergs.
 
Í kynningu bókasafnsins segir:
 
Ritþinginu er ætlað að gera höfundarverki Kristínar ríkuleg skil, skyggnast inn í hugarheim listamannsins og samhliða dagskrá þingsins opnar myndlistarsýning með myndverkum Kristínar í sýningarsal Borgarbókasafnsins Gerðubergi sem mun standa frá 26. október og út árið 2023.
 
Kristín Ómarsdóttir, rithöfundur, er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún hefur skrifað innan ólíkra bókmenntategunda allt frá árinu 1985; ljóð, leikrit, skáldsögur, smásögur og býr yfir einstakri skáldskaparrödd, hefur verið afkastamikil á sínu sviði og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Fantasía skáldverka Kristínar hefur rætur líkt og tré í jörðu, áþreifanleg og djúphugul staðreynd sem allt vex af, lifir, elskar og deyr - og raunveruleiki mannanna lekur eins og segir í skáldsögunni Svanafólkið (2019). Fyrsta verk hennar, leikritið Draumar á hvolfi (1985) hlaut fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni Þjóðleikhússins, leikrit hennar, Ástarsaga 3 (1997) var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna og skáldsagan Elskan mín ég dey (1997) var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999. Þá hlaut Kristín Viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins 1997. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin sem leikskáld ársins fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin árið 2008. Hún hefur fengið fjölda tilnefninga til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, m.a. fyrir ljóðabókina kóngulær í sýningargluggum (2017), sem hún einnig hlaut ljóðabókaverðlaunin Maístjörnuna fyrir og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar og tekið þátt í sýningum. Skáldverk Kristínar Ómarsdóttur hafa verið þýdd á sænsku, dönsku, frönsku, finnsku, ensku. Árið 2018 var Waitress in Fall valin besta ljóðabók ársins hjá The Sunday Times. Á síðasta ári 2022 var skáldsagan Svanafólkið/Swanfolk útgefin á ensku í Bretlandi og Bandaríkjunum. Kristín hefur numið rússnesku, íslensku og bókmenntir við Háskóla Íslands og spænsku sem annað mál við Háskólann í Barcelona.
 
Stjórnandi ritþings er Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur, höfundur og fyrrum útgáfustjóri, um sýningarstjórn myndlistarsýningar sér Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, myndlistarmaður. Spyrlar ásamt stjórnanda eru Jórunn Sigurðardóttir, dagskrágerðarkona og leikari, og Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor í íslenskum samtímabókmenntum. Um tónlist sér Gyða Valtýsdóttir.
 
Frítt er inn á ritþingið í Tjarnarbíói laugardaginn 28. október sem og á myndlistarsýninguna í Gerðubergi sem opnar 26. október og þið eruð öll velkomin í veisluna.

 

Tengt efni