SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 8. október 2024

FÍKN OG TÖFRAR - Ný bók frá Ragnheiði

Í haust kemur út ný ljóðabók eftir Ragnheiði Lárusdóttur. Í bókinni fjallar hún m.a. um þá sáru reynslu að horfa á dóttur lenda í fjötrum fíknar en líka um þá töfra tilverunnar sem umlykja okkur þrátt fyrir allt, segir í kynningartexta frá Bjarti.

Ljóðmál Ragnheiðar er beinskeytt og sterkt, eins og lesendur þekkja úr þremur fyrri bókum hennar – sem allar fylgja með í kaupunum.

 

Þegar bæði sól og tungl eru á lofti

sendir kvöldsólin mér geisla

um æðar mér

rennur eldheitt

appelsínurautt sólarblóð

mávur flýgur

milli tveggja hnatta

handan við hafblámann

mótar fyrir útlínum jökuls

 

 

 

Tengt efni