SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir11. febrúar 2026

BÓKMENNTAVERÐLAUN AFHENT Í KVÖLD

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn verða afhent í kvöld! Spennan vex. Hver hreppir verðlaunin?

Sjá hér neðst ritdóma um nokkur hinna tilnefndu verka.

 

Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:

Fraedi-Froken-Dulla

Kristín Svava Tómasdóttir: Fröken Dúlla: Ævisaga

Umsögn dómnefndar:
Höfundur hefur unnið þrekvirki með því að skrásetja ævisögu Jóhönnu Knudsen (Dúllu). Yfirheyrslum og rannsóknum Jóhönnu á ástandsstúlkum hefur verið lýst sem umfangsmestu persónunjósnum Íslandssögunnar. Dómur sögunnar hefur því óneitanlega verið henni óhagstæður á síðari árum og í því felst mikil áskorun fyrir ævisagnaritara. Í verkinu er áleitnum spurningum svarað af festu og yfirvegun. Bókin byggir á styrkum fræðilegum grunni en frásögnin er lipur, áhugaverð og spennandi.

Fraedi-Hennar-rodd

Chanel Björk Sturludóttir, Elinóra Guðmundsdóttir og Elínborg Kolbeinsdóttir: Hennar rödd: Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

Umsögn dómnefndar:
Ákaflega metnaðarfullt og mikilvægt verk sem miðlar fjölbreyttum sögum kvenna á Íslandi sem hafa oftar en ekki átt takmarkaða rödd í opinberri umræðu. Ritstjórar hafa með mikilli næmni og virðingu fyrir viðfangsefninu safnað saman ólíkum röddum og sjónarhornum kvenna sem eiga það sameiginlegt að vera af erlendu bergi brotnar, en hafa um leið auðgað íslenskt þjóðlíf svo um munar, hver á sinn hátt. Bókin er bæði skrifuð á íslensku og ensku, hana prýða fallegar ljósmyndir og það tekst afbragðs vel að kynna lesendur fyrir konunum sem deila sögum sínum.

Fraedi-Mynd-hand

Davíð Ólafsson og Arndís S. Árnadóttir: Mynd & hand: Skólasaga 1939–1999

Umsögn dómnefndar:
Í bókinni er fjallað með vönduðum og áhugaverðum hætti um 60 ára sögu Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þar er dregin upp ljóslifandi mynd af mikilvægu hlutverki skólans sem var í senn kennaraskóli, listiðna-, hönnunar- og myndlistaskóli. Lifandi frásagnarhátturinn varpar skýru ljósi á söguna en bókin er einnig ríkulega myndskreytt og fangar þannig andrúmsloftið í Mynd&hand. Fallegt og fróðlegt verk sem undirstrikar ómissandi þátt skólans í menningarsögu Íslands.

Fraedi-Spegill-thjodar

Gunnar V. Andrésson og Sigmundur Ernir Rúnarsson: Spegill þjóðar: Fréttamyndir í fimmtíu ár og sagan á bak við þær

Umsögn dómnefndar:
Ákaflega vandað og tímabært verk sem hefur að geyma margar af kunnustu fréttaljósmyndum Gunnars V. Andréssonar. Myndirnar spanna hálfrar aldar farsælan feril Gunnars. . Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur skráð sögurnar, á bak við myndirnar á lifandi hátt, sem gefa þeim samhengi og aukna dýpt. Bókin er áferðarfalleg og skemmtileg. Hún er á sama tíma mikilvægt innlegg í sögu þjóðarinnar og fjölmiðla á Íslandi, enda er þar að finna á annað hundrað myndir af augnablikum sem greypt eru í þjóðarsálina.

Fraedi-Thegar-mamma-min-do

Sigrún Alba Sigurðardóttir: Þegar mamma mín dó

Umsögn dómnefndar:
Einstakt verk sem fjallar um reynslu höfundar af því að fylgja móður sinni síðasta spölinn. Um er að ræða einlæga og opinskáa lýsingu á þeim sterku tilfinningum sem kvikna í tengslum við dauðann og það að kveðja; bæði ást og umhyggju en einnig líðan á borð við samviskubit og vanmátt. Bókin á brýnt erindi við samtímann. Fjallað er um þær aðstæður sem samfélagið hefur búið dauðvona fólki og ekki síst álagið og ábyrgðina sem aðstandendur þurfa að takast á við á óumflýjanlegum tímamótum.

 

Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki skáldverka:

Skald-Andrymi

Eiríkur Jónsson: Andrými: kviksögur

Umsögn dómnefndar:
Listilega skrifuð bók sem inniheldur frumlegar hugmyndir í einnar blaðsíðna kviksögum um fjölkynngi tilverunnar. Oft hverfast þær um sérkennilegar persónur og störf þeirra; til að mynda mann sem vinnur við að fallprófa lyftur og lækni sem sérhæfir sig í meðferð útdauðra sjúkdóma eins og sullaveiki. Tilvistarspekilegar vangaveltur spretta upp úr lögmálum raunvísindanna en nístandi kímni og lágstemmdur tregi binda sögurnar saman.

Skald-Blai-PardusinnSigrún Pálsdóttir: Blái pardusinn: hljóðbók

Umsögn dómnefndar:
Stutt saga af öldruðum bókmenntafræðingi með brostna skáldkonudrauma, uppgjafar sagnfræðingi sem er markaðsstjóri sælgætisverksmiðju, og bókelskri flugfreyju sem á erfitt með að fóta sig á fullorðinssvellinu. Þau eiga það sameiginlegt að hlusta á dularfullu hljóðbókina Bláa pardusinn – af mismikilli athygli þó – um íslenska konu sem lendir í ævintýralegum hremmingum í seinni heimsstyrjöld og ku vera byggð á sannsögulegum atburðum. Hér er á ferðinni djörf formtilraun sem gengur upp í æsilegri atburðarás þar sem höfundur þenur mörkin milli sögulegra heimilda, skáldskapar og sannleika.

Skald-Lausaletur

Þórdís Helgadóttir: Lausaletur

Umsögn dómnefndar:
Marglaga skáldsaga á mörkum hins óþekkta þar sem dularfullur faraldur hefur gripið um sig á meðan prentsafnið opnar enn á slaginu níu, sama hvað á dynur. Starfsfólk safnsins tekst á við hversdagsleikann sem smám saman snýst upp í andhverfu sína þegar undirliggjandi framandleikinn læðist upp á yfirborðið eins og kötturinn sem spígsporar um safnið. Frásögn sem einkennist af næmni og listilega fléttuðum lýsingum ástands þar sem við getum aldrei verið viss og flest getur brugðist, jafnvel minnið.

Skald-Stadreyndirnar

Haukur Már Helgason: Staðreyndirnar

Umsögn dómnefndar:
Í heimspekilegri háskerpu framkallar höfundur margbrotna mynd af hverfulleika staðreyndarinnar í upplýsingaóreiðu samtímans. Undirgefni þjóðar við valdhafa kemur berlega í ljós þegar ráðherra setur á fót Upplýsingastofu og ræður smánaðan fyrrum aðstoðarmann ráðherra sem skrifstofustjóra staðreyndagrunns. Haukur Már Helgason kafar hér ofan í óþægilegustu fortíð Íslendinga og veltir okkur upp úr henni með aðstoð hamstola vitlíkisvélar.

Skald-Thyngsta-frumefnid

Jón Kalman Stefánsson: Þyngsta frumefnið

Ægifalleg ljóðabók sem lesandi getur nálgast eins og gamlan vin þar sem flakkað er áreynslulaust milli hins háfleyga og hversdagslega. Guð býr nefnilega ekki bara í eilífðinni, heldur líka girðingunni, kaffinu, gæskunni, uppvaskinu, kynlífinu og ekki síst Ikea-sexkantinum. Sorgin er alltumlykjandi þyngsta frumefnið og ljóðmælandi þá eins konar Sísýfos söknuðarins; hífir sokknar sólir úr hafi að morgni og rúllar harminum á undan sér upp stórgrýtta fjallshlíð mannlegrar tilvistar.

Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til Blóðdropans:

Blod-Alfa

Alfa. Lilja Sigurðardóttir

Umsögn dómnefndar:
Áhugaverð og þéttofin glæpa- og framtíðarsaga, vel úthugsuð og grípandi. Fléttan er krefjandi með góðri persónusköpun og stíganda sem heldur lesandanum við efnið.

 

Blod-Allar-litlu-lygarnar

Allar litlu lygarnar: Eva Björg Ægisdóttir

Umsögn dómnefndar:
Heillandi bók sem grípur lesandann frá fyrstu síðu með spennandi framvindu. Blekkingar sögunnar eru ögrandi og lesandinn veit stundum ekki hvaðan á hann stendur veðrið. Sannfærandi persónusköpun og góð flétta sem kemur stöðugt á óvart.

 

Blod-Eftirfor

Eftirför:Anna Rún Frímannsdóttir

Umsögn dómnefndar:
Trúverðug og raunsönn lýsing á einelti unglinga og átakanlegum afleiðingum þess með góðri persónusköpun og lifandi frásagnarmáta. Spennandi og vel uppbyggð saga sem heldur lesandanum vel við efnið.

 

Blod-Lif 

Líf: Reynir Finndal Grétarsson

Umsögn dómnefndar:
Átakamikil og hröð frásögn með flókinni fléttu og óhugnanlegu ívafi. Sagan dýpkar eftir því sem á líður og persónur sýna sitt rétta andlit. Kraftmikil og ögrandi.

Blod-Lokar-augum-blam

Lokar augum blám. Margrét S. Höskuldsdóttir

Umsögn dómnefndar:
Skemmtilegur stíll og sannfærandi persónur drífa áfram áhugaverða sögu sem heldur spennunni út í gegn. Sögusvið og aðstæður eru ljóslifandi og lesandinn hrífst með upplifun og hugsunum persónanna.

 

Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til verðlauna í flokki barna- og ungmennabóka:

Barna-Eg-by-i-risalandi

Ég bý í risalandi. Birna Daníelsdóttir

Umsögn dómnefndar:
Hugljúf, falleg og einlæg frásögn þar sem höfundur leikur sér með form, liti og sjónarhorn. Verkið er fagurlega myndskreytt saga frá sjónarhorni barns sem lætur ekkert stoppa sig.

Barna-Raekjuvik

Rækjuvík: Saga um dularfull skeyti og stuð. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Umsögn dómnefndar:
Fyndin og ómótstæðilega falleg hversdagssaga með skrautlegum, hlýjum og eftirminnilegum persónum. Lesendur eiga vafalaust eftir að njóta sögunnar en einnig vönduðum frágangi bókarinnar, sem býður upp á áframhaldandi skemmtun jafnvel eftir að lestri lýkur.

Barna-Silfurberg

Sesselía Ólafs: Silfurberg

Umsögn dómnefndar:
Frumleg og skemmtileg saga úr heimi íslenskra ævintýra og þjóðsagna. Áhugaverðar og ólíkar persónur vinna saman í baráttu góðs við illt og úr verður hörkuspennandi saga sem hentar breiðum aldurshóp.

Barna-Skolastjorinn

Ævar Þór Benediktsson og Elín Elísabet Einarsdóttir myndhöfundur: Skólastjórinn

Umsögn dómnefndar:
Lífleg saga sem sameinar húmor, spennu og þroskasögu grunnskólanema í krefjandi en oft bráðfyndnum aðstæðum. Mikið fjör og stuð er í sögunni sem hvetur lesendur áfram á næstu síðu.

Barna-Solgos

Arndís Þórarinsdóttir: Sólgos

Umsögn dómnefndar:
Áhrifarík og spennandi hamfarasaga þar sem lesendur fá að fylgjast með áhugaverðum sögupersónum í ógnvekjandi og spennandi aðstæðum. Höfundi tekst vel að skapa trúverðuga mynd af breyttu samfélagi og fangar athygli lesenda sem hann sleppur ekki fyrr en löngu eftir að lestri lýkur.

 

 

 

Heimild: isllit.is

 

 

 

 

Tengt efni