SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir27. apríl 2026

TILNEFNINGAR TIL MAÍSTJÖRNUNNAR 2026

 

Í dag var tilkynnt hvaða ljóðabækur eru tilnefndar til Maístjörnunnar 2026. Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi og að þessu sinni var valið úr 70 úr ljóðabókum sem komu út 2025 og var skilað inn til Landsbókasafns.

Eftirfarandi verk hlutu tilnefningu og með fylgja umsagnir dómnefndar:

Anna Rós Árnadóttir: Fyrir vísindin. Benedikt 2025.

Frumlegt verk sem lætur sig varða tengslaleysi manneskjunnar við eigin tilfinningar. Ljóðmælandi eins og vísindamaður í eigin lífi. Sterkar og lúmskar lýsingar á andlegum hnökrum manneskjunnar og ómöguleikanum við að fanga þá í tungumál vísindanna. Höfundur skapar lífræna og kankvíslega lestrarupplifun.

Eiríkur Örn Norðdahl: Fimm ljóð. Mál og menning 2025.

Marglaga og margradda safn ljóða sem eru beinskeytt og dulræn í senn. Hátt og lágt mætist í fáguðu og meitluðu máli; sjoppan og sjónvarpsþættir, fjöllin og skýin. Höfundur sýnir á sér nýjar hliðar og afhjúpar rödd miðja vegu milli einlægni og íróníu.

Jón Kalman Stefánsson: Þyngsta frumefnið: ljóð. Benedikt 2025.

Beinskeytt og marglaga verk um sorg og söknuð. Ljóðin eru efnisþéttar frásagnir og nýtur hrynjandin sín í klifunum sem undirstrika mannlífið, tilfinningar, heiminn, guð og allt þar á milli. Höfundur leitar að kærleika og samkennd á þeim ógnartímum sem nú vofa yfir veröldinni.

Natasha S.: Mara kemur í heimsókn. Benedikt 2025.

Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, persónuleg og pólitísk. Mögnuð lýsing á kvíða, vanmætti og varnarleysi. Ljóðmælandi lærir að lifa með Möru, að gangast við ótta sínum í heimi sem er á hvolfi. Áleitið verk og tímabært.

Sunna Dís Másdóttir: Postulín. Mál og menning 2025.

Lágstemmd ljóð um ógn og fegurð náttúrunnar. Persónulegum og fíngerðum ljóðmyndum af innanstokksmunum og minningum er stillt upp gegn yfirgnæfandi fjalli og vetri. Heildstæð bók höfundar sem hefur góð tök á ljóðmáli og tilfinningatjáningu.

Vala Hauks: Félagsland. Mál og menning 2025.

Skemmtilegt verk og félagslegt; næm Íslandslýsing með samspili texta og mynda, í senn ljúf og kaldhæðin, angurvær og fyndin. Fjölbreytt sjónarhorn, þjóðlegar stemmningar og margbrotnar tilfinningar tjáðar á ljóðrænan hátt.

 

Maístjarnan verður afhent við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 20. maí næstkomandi.

Myndin af tilnefndum höfundum var tekin af vef Rithöfundasambands Íslands.

Tengt efni