SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 4. júní 2026

NATASHA S HLÝTUR MAÍSTJÖRNUNA

 

Í gær voru hin virtu ljóðabókaverðlaun, MAÍSTJARNAN, veitt í tíunda sinn og komu verðlaunin í hlut Nathösu S, fyrir bókina Mara kemur í heimsókn. Að verðlaununum standa Landsbókasafn - Háskólabókasafn og Rithöfundarsamband Íslands og eru þetta einu íslensku bókmenntaverðlaunin sem veitt eru fyrir útkomna ljóðabók, en Verðlaun Tómasar Guðmundssonar, sem eru á vegum Reykjavíkurborgar, eru veitt fyrir óbirt handrit af ljóðabók. Síðarnefndu verðlaunin hlaut Natasha S einmitt fyrir fyrstu ljóðabók sína sem bar titilinn Máltaka á stríðstímum.

Í dómnefnd Maístjörnunnar í ár sátu rithöfundarnir Áslaug Jónsdóttir og Tómas Ævar Ólafsson og bókmenntafræðingurinn Sveinn Yngvi Egilsson. Í umsögn þeirra um verðlaunaverkið segir:

 

 

Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, persónuleg og pólitísk. Mögnuð lýsing á kvíða, vanmætti og varnarleysi. Ljóðmælandi lærir að lifa með Möru, að gangast við ótta sínum í martraðarkenndum heimi sem er á hvolfi. Leikurinn berst inn á hættusvæði stríðs og ógna en það er líka heimavöllur ljóðmælanda. Ófriðurinn veldur sundrungu, einmitt þegar hluttekningar og samkenndar er þörf. Áleitið verk og tímabært.

 

 

Það má með sanni segja að skáld og rithöfundar af erlendum uppruna séu farin að auðga íslenskar nútímabókmenntir svo um munar. Snemma á árinu hlaut Maó Alheimsdóttir Fjöruverðlaunin fyrir ljóðabókina Hvalbak, en báðar þessar ljóðabækur eru einstakar, hvor á sinn hátt.

Við óskum Nathösu S hjartanlega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu!

 

 

 

Tengt efni