VARSTU AÐ KOMA? Skemmtileg kvöldvaka
Það var vel mætt á kvöldvöku á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands, sem gengur oftar undir nafninu Heilsuhælið í Hveragerði.
Fluttur var leiklestur á verkinu Varstu að koma? eftir Elísabetu Jökulsdóttur en Ásdís Skúladóttir og Bergþór Pálsson sáu um flutninginn. Að sögn Elísabetar geymdi leikverkið raunveruleg samtöl og samskipti fólks á hælinu. Það var sprenghlægilegt.
Einnig fór fram lestur á ljóðum og smáprósum en Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir fór með frumsamið efni og Soffía Auður Birgisdóttir las ljóð eftir Nínu Björk Árnadóttur. Auk þessa steig á stokk Erlingur Arnarson og las upp úr kverinu 13 vegvísar til barna minna. Kvöldvökunni lauk síðan með fjöldasöng sem Bergþór Pálsson stýrði styrkri röddu.
Þessi kvöldstund reyndist hin besta skemmtun.



