Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙26. júlí 2026
LJÓÐASAMKEPPNI HINSEGIN DAGA 2026

Það styttist í Hinsegin daga og nú sem endranær verður haldin spennandi ljóðasamkeppni. Öll eru hvött til þátttöku, hvort sem um atvinnu- eða skúffuskáld er að ræða. Ljóðin mega vera á hvaða tungumáli sem er en dómnefndin ábyrgist þó ekki að hún skilji öll tungumál heimsins.
Frestur til að skila inn ljóði er á morgun, 27. júlí, á netfangið huslestrar@gmail.com. Úrslit verða kynnt 6. ágúst.
Dómnefnd skipa Anna Rós Árnadóttir, Ásdís Óladóttir og Anton Helgi Jónsson. Þau fá ljóðin ómerkt í hendur og órekjanleg til skáldanna.

