Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙30. júlí 2026
LJÓÐ DAGSINS ER SNIÐ

Ljóð dagsins kallast Snið og er úr nýrri ljóðabók eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Ljóðabókin ber titilinn Köngurváfa en það er eitt af mörgum orðum sem til eru yfir þann ættbálk áttfætlna sem oftast kallast könguló.
Ljóðabókin er kynnt svo:
Köngurváfa er önnur ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur en þar tekst hún á við tilvistina með textum sem spretta úr upprunanum og horfa til framtíðar. Bókin spinnur þræði um formæður, fluguhnýtingar, ferðalög og stórtónleika heilmynda ABBA-flokksins, svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrri ljóðabók Arndísar, Innræti, hlaut góðar viðtökur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Arndís er jafnframt ötull barna- og ungmennabókahöfundur og hefur meðal annars fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir verk sín, auk tilnefninga til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Þýsku barnabókaverðlaunanna og Minningarverðlauna Astridar Lindgren.
Snið
Klæðskerinn krítar hvíta línu á efnið
Er þetta ég
spyr ég
og bendi á þokkafulla sveigjuna
Hann svarar ekki
bregður málbandi um upphandlegg
úlnlið
háls
Krítar meira á efnið
dregur upp skærin
Eggjarnar mætast
efnið klofnar
svo það geti orðið meira
eins og ég
Ég stend grafkyrr á pallinum
á meðan skraddarinn
saumar utan um mig klæðið
saumar mig inn í kjólinn
Ekki hreyfa þig
segir hann
eða ég sting þig
(bls. 22)



