Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙ 7. ágúst 2026
BESTU LJÓÐ HINSEGIN DAGA OG FLERI HÝRIR HÚSLESTRAR
Það var vel mætt á Hýra húslestra í gærkvöldi í Iðnó enda vönduð og skemmtileg dagskrá í boði.Fyrst stigu ýmis skáld og höfundar á stokk og lásu úr verkum sínum: Bergrún Íris Sævarsdóttir flutti óbirt ljóð eftir sig og Gerður Kristný las úr þýðingu sinni á bókinni Dóttir myndhöggvarans eftir Tove Jansson. Þá las Elías Rúni upp úr sjálfsævisögulegri myndasögu sem kemur út í haust. Auk þess lásu Esjar Eiríkur Didziokas og Friðrik Agni Árnason úr verkum í vinnslu, Jakub Stochowiak úr ljóðabók sinni Meðan borgin blánar, Guðbrandur Árni Ísberg úr bókinni Í augum þínum verð ég til – um ástina og Árni Pétur Guðjónsson og Ólafur P. Sigurðsson úr Villistrákunum eftir William S. Burroughs,
Síðan rann upp stóra stundin og tilkynnt var um hver báru sigur úr býtum í Ljóðasamkeppni Hinsegin daga 2026.
Það fór svo að fyrstu verðlaun hlaut ljóðið Birki eftir Esjar Eirík Didziokas, önnur verðlaun fékk Í stólnum eftir Guggu og þau þriðju fékk ljóðið Tungumál eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.
Í dómnefnd voru Anton Helgi Jónsson, Ásdís Óladóttir og Anna Rós Árnadóttir. 47 ljóð bárust í keppnina að þessu sinni og hafði Anton Helgi orð á því að það væri vert að fara að safna öllum þeim ljóðum sem borist hafa keppninni í tímans rás saman á bók. Það væri sannarlega fengur að slíkum grip.